Saga Nettó
Forsíða   Tenglar   Hafðu samband    Leita 

  Akureyri, Grindavík, Höfn, Kópavogi og Mjódd Reykjavík

  Saga Nettó  Prentvæn útgáfa  

Fyrsta Nettó verslunin var opnuð 22. ágúst 1989 í Höfðahlíð 1 á Akureyri.  Sú verslun sprengdi fljótlega það húsnæði og 22. maí 1992  var flutt í mun stærra og rúmbetra húsnæði að Óseyri 1.  Þar tók við nýtt vaxtaskeið.  Á þeim 8 árum sem Nettó var til húsa á Óseyri var húsnæðinu margbreytt og þrisvar var byggt við.  Það var svo seinnipart árs 1999 að ákveðið var að flytja verslunina og 2. nóvember 2000 var flutt í nýja og glæsilega verslunarmiðstöð á Glerártorgi.  Við þennan flutning stækkaði verslunarrýmið um u.þ.b 100%.  Heildarstærð húsnæðisins er um 2.220 m2.01h1044

Í dag er heildarfjöldi starfsmanna 33, og þar u.þ.b. 15 í fullu starfi.  Um helmingur starfsmanna er skólafólk sem vinnur með skóla.

KEA (Kaupfélag Eyfirðinga) rak Nettó þar til um áramótin 1999-2000 að Matbær ehf. tók við rekstrinum.  Matbær og Samkaup sameinuðust á árinu 2001 og um áramótin 2001-2002 tók sameiginlegt fyrirtæki, Samkaup hf., við rekstrinum.

Aðrar Nettó verslanir eru í Mjódd sem var opnuð 1.sept. 1998. Nettó verslun var svo opnuð við Salaveg í Kópavogi 12. apríl 2002. Nettó fjölskyldan hefur síðan haldið áfram að stækka og 21. apríl 2005 var Samkaup úrval verslun í Grindavík breytt í Nettó verslun. 1 desember 2006 var Nettó verslun á Akranesi breytt í Kaskó verslun og loks var glæsileg verslun opnuð í Miðbæ í Höfn á Hornafirði 2 mars 2007. Í dag eru Nettó verslanir þannig orðnar 5 talsins.