Algengar spurningar
No items found.
Nettó appið
Frá og með 5. maí 2026 breytist Samkaupa appið í Nettó appið. Nettó appið er hægt að nota í verslunum Nettó, Kjörbúða og Krambúða. Hér fyrir neðan eru svör við helstu spurningum sem þú gætir haft varðandi það að færa þig yfir í nýtt app.
Hvernig safna ég inneign?

Ef þú ert skráður meðlimur í KSK, KB, KASK eða KÁ færðu 2% inneign í appið af vörum sem þú verslar í Nettó, Kjörbúðinni og Krambúðinni. Til að safna inneign auðkennir þú þig á kassa áður en þú greiðir.

Svona auðkennir þú þig á sjálfsafgreiðslukassa:

  • Opnaðu Nettó kortið í veskinu í símanum þínum
  • Berðu strikamerkið á Nettó kortinu upp að skannanum á kassanum
  • Þegar þú sérð nafnið þitt á skjánum á kassanum þá veistu að innskráning hefur heppnast. Nafnið þitt birtist annað hvort efst á skjánum eða fyrir ofan vörulistann, það fer eftir því hvernig sjálfsafgreiðslukassa þú ert á.

Svona auðkennir þú þig á beltakassa:

  • Opnaðu Nettó kortið í veskinu í símanum þínum
  • Réttu starfsmanni á beltakassa símtækið og hann skannar kortið
  • Bráðlega kemur skanni á posa þar sem viðskiptavinir geta auðkennt sig sjálfir
Hvað er Nettó kortið?

Nettó kortið er framlenging á appinu og gerir þér kleift að auðkenna þig hratt og auðveldlega á kassanum þegar þú verslar.

Svona setur þú Nettó kortið í veskið í símanum þínum:

  • Opnaðu Nettó appið
  • Smelltu á hnappinn ‘Inneign’ neðst á skjáunum
  • Smelltu á ‘Bæta í veskið’
  • Smelltu svo á ‘Add’ og kortið er komið í veskið
Hvernig virkja ég kaupfélagskjörin mín í Nettó appinu?

Ef þú ert skráður meðlimur í KSK, KB, KASK eða KÁ uppfærast kjörin þín sjálfkrafa í Nettó appinu, meðlimir fá 2% inneign í appið af vörum sem þeir versla í Nettó, Kjörbúðinni og Krambúðinni. Kjörin þín eru virk ef þú sérð merki kaupfélagsins birtast á Nettó kortinu í veskinu í símanum.

Hvernig borga ég með inneign?

Þú getur greitt með inneign þegar þú verslar í Nettó, Kjörbúðinni og Krambúðinni. Til að greiða með inneign auðkennir þú þig á kassa áður en þú greiðir.

Svona greiðir þú með inneign á sjálfsafgreiðslukassa:

  • Opnaðu Nettó kortið í veskinu í símanum þínum
  • Berðu strikamerkið á Nettó kortinu upp að skannanum á kassanum
  • Þegar þú sérð nafnið þitt á skjánum á kassanum þá veistu að innskráning hefur heppnast. Nafnið þitt birtist annað hvort efst á skjánum eða fyrir ofan vörulistann, það fer eftir því hvernig sjálfsafgreiðslukassa þú ert á.
  • Þegar þú ætlar að greiða, veldu ‘Aðrir greiðslumátar’ og því næst ‘Nettó vildarkort’
  • Sláðu inn hversu mikla inneign þú vilt nota til að greiða með inneign.

Svona greiðir þú með inneign á beltakassa:

  • Opnaðu Nettó kortið í veskinu í símanum þínum
  • Réttu starfsmanni á beltakassa símtækið og hann skannar kortið
  • Láttu starfsmann vita hversu mikla inneign þú vilt nota til að greiða með
  • Bráðlega kemur skanni á posa þar sem viðskiptavinir geta auðkennt sig sjálfir
Fyrnist inneignin mín?

Inneign fyrnist á tveimur árum frá því að þú vannst þér hana inn.

Hvar get ég séð hversu mikla inneign ég á?

Þú getur séð hversu mikla inneign þú átt á Nettó kortinu í veskinu í símanum þínum eða á aðalskjánum í Nettó appinu.

Hvar sé ég kvittanirnar mínar?

Til að sjá kvittanirnar þínar gerir þú eftirfarandi:

  • Opnaður Nettó appið
  • Smelltu á ‘Inneign’ í valmyndinni neðst á skjánum
  • Smelltu á ‘Sjá kvittanir’. Þarna getur þú skoðað allar þínar kvittanir.
Hvað þarf ég að gera til þess að fá Nettó appið?

Ef þú varst með Samkaupa appið í símanum þínum og með kveikt á sjálfvirkum uppfærslum þá uppfærist það sjálfkrafa í Nettó appið. Það eina sem þú þarft að gera er að skrá þig inn í Nettó appið með rafrænum skilríkjum eða Auðkennisappinu.

Ef þú varst ekki með Samkaupa appið þá getur þú sótt Nettó appið á App Store fyrir iPhone eða Play Store fyrir Android.

Í hvaða verslunum get ég notað Nettó appið?

Þú getur notað Nettó appið í Nettó, Kjörbúðinni og Krambúðinni.

Gjafakort
Gjafakort

Rafræn gjafakort Samkaupa eru fullkomin gjöf fyrir öll tækifæri. Þú getur keypt gjafakort rafrænt með því að smella á kaupa gjafakort hér fyrir neðan og sett kortið beint í símann þinn. Þú getur keypt kort fyrir hvaða upphæð sem er, að lágmarki 2.500 krónur.

Gjafakortin eru fáanleg í öllum verslunum Samkaupa. Fyrir magnpantanir, vinsamlegast hafðu samband gjafakort@samkaup.is.

Gjafakortið gildir til greiðslu á vörum og þjónustu hjá fyrirtækinu. Innistæðuna er ekki hægt að leysa út í reiðufé.

Kortin gilda í tvö ár frá útgáfudegi.

Skoða stöðu gjafakort
Kaupa gjafakort

Fyrir frekari upplýsingar, vinsamlegast sendu tölvupóst á gjafakort@samkaup.is

Skoða skilmála gjafakorta