Gefum
vel
Allt fyrir litla og stóra lestrarhesta
Jólabókaflóðið er skollið á og í Nettó finnur þú réttu bókina í jólapakkann í ár.
No items found.

Góð saga undir jólatréð

Í ár bjóðum við upp á frábært úrval bóka á góðu verði. Hvort sem þú leitar að spennusögu fyrir pabba, ævisögu fyrir ömmu eða ævintýri fyrir litla lestrarhestinn. Bækurnar fást í verslunum Nettó um land allt.

Bækur til að kíkja á

Hér eru nokkrar nýjar bækur sem gaman er að glugga í, hvort sem þær enda í pakkanum, í körfunni eða á náttborðinu. Flettu yfir þær og sjáðu hvort eitthvað kallar á þig.

Arnaldur Indriðason

Morðið á Evelyn Gray

Hröð og hörkuspennandi glæpasaga þar sem Hollywood mætir íslenskum veruleika á Kópaskeri. Lóla, ung lögreglukona frá Akureyri, er send norður þegar kvikmyndatökulið kvartar undan heimafólki, og fyrr en varir er hún komin í lífshættulegan eltingarleik. Fyrsta bókin í nýjum bókaflokki Arnaldar.

Óttar Sveinsson

Útkall: Bjargvættir í hamförum

Hin hliðin á snjóflóðunum í Súðavík og á Flateyri árið 1995: sagan af björgunarsveitarfólkinu sem lagði sig í lífshættu við leit og björgun. Útkallsbækurnar hafa komið út árlega frá 1994.

Yrsa Sigurðardóttir

Mara

Þegar tvö ungmenni fara niður um ís á stöðuvatni kemur í ljós að þar hafa fleiri óhugnanlegir atburðir gerst, og þeir sem kafa í vatninu fá martraðir. Spennandi dulúðarsaga frá Yrsu.

Stefán Máni

Gleym mér ei

Á hrekkjavökukvöldi er ekið á sjö ára stúlku á reiðhjóli og bílstjórinn hverfur. Lögreglumaðurinn Hörður Grímsson heitir foreldrunum að finna þann seka, sama hvað það kostar.

Ragnar Jónasson

Svartakóf

Lögreglumaðurinn Helgi Reykdal er á leið á Litla-Hraun með tveimur samstarfsmönnum og fram undan er mesta raun sem hann hefur ratað í. Tuttugasta bók Ragnars og sú þriðja um Helga.

Birgitta Haukdal

Lára fer á skauta

Lára hefur aldrei prófað að skauta, svo hún og mamma skella sér á svellið með bangsann Ljónsa. Mest langar Láru að hraðsnúast á ísnum.

Birgitta Haukdal

Atli fer til tannlæknis

Atli fær verk í tönn og mamma fer með hann til Elfu tannlæknis. Á biðstofunni hittir hann Láru og Ljónsa, og tannlæknastóllinn minnir Atla á geimskip úr framtíðinni.

Eva Björg Ægisdóttir

Þau sem urðu eftir

Rakel fær ábendingu um ríflega þrjátíu ára gamalt hvarf unglingsstúlku og tekur það fyrir í hlaðvarpinu sínu. Fljótlega kemst hún að því að ekki allir vilja að fortíðin sé grafin upp.

Guðrún Eva Mínervudóttir

Ljósfaðir

Söguleg skáldsaga um forföður höfundar, Jónas í Hróarsdal í Skagafirði, bónda og yfirsetumann með leyfi til lækninga þangað sem sjúkir og lemstraðir leituðu. Jafnvægið á heimilinu raskast þegar barnabarn úr Vesturheimi birtist.