Skilmálar
Hér fyrir neðan má lesa skilmála Nettó.
Ábyrgð
Ábyrgð vegna framleiðslugalla á vöru er í samræmi við neytendakaupalög 48/2003 ogmiðast við kaupdagsetningu til einstaklinga utan atvinnustarfsemi. Ef um ræðirsölu á vöru til fyrirtækis (atvinnustarfsemi) er ábyrgð á framleiðslugalla 1 árfrá kaupdegi samkvæmt lögum um lausafjárkaup lög nr 50/2000.
Gölluð vara
Ef að vara er gölluð eða vanti hluta af vöru er seljenda skylt að bjóða kaupandanýja vöru, afslátt, endurgreiðslu á gallaðri vöru eða viðgerð ef það er hægt.Það fer eftir atvikum hvaða úrlausn er valin hverju sinni.Mælt er með að tilkynningin berist innan 7 daga frá því að kaupandi verður varvið galla í vöru. Tilkynning á galla verður að berast skriflega eða munnlega.
Skilaréttur
Kaupandi hefur 14 daga skilarétt á vörum frá Nettó og getur valið sér nýja eða óskað eftir endurgreiðslu.
Eftirfarandi vörur eru ekki með skilarétti:
- Matur og drykkur
- Vítamín, fæðubótaefni, bætiefni og heilsuvörur ætlaðar til inntöku.
- Hárvörur, húðvörur, förðunarvörur og ilmvötn.
- Undirföt og sokkar
Aðeins er tekið við eftirfarandi vörum í óopnuðum umbúðum
- Rafhlöðum
- Bókum
- Spil og leikföng
- Pappír og skrifstofuvörur
Endurgreiðslur fara fram með millifærslu í heimabanka eða geta myndað inneign á notendaaðgangi.
Eignarréttur
Seldar vörur eru eign seljanda þar til kaupverð er að fullu greitt.Reikningsviðskipti eða önnur lánaform afnema ekki eignarétt seljanda fyrr enfull greiðsla hefur borist.
Varnarþing
Neytendakaup er fjallað um í lögum um neytendakaup, lögumum samningsgerð, lögum um rafræn viðskipti og aðra rafræna þjónustu,lögræðislög og lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Þessir skilmálar eru í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans, skal þaðrekið fyrir íslenskum dómstóli.
Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um neytendasamninga nr 16/2016 og ákvæðilaga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem nefndir eru í lögum nr.16/2016 byrja að líða þegar móttaka vöru á sér stað.
Gildistími: Skilmálar þessi gilda frá 1.júní 2022