
Bananakaka með valhnetum og súkkulaði
80
mín
Erfiðleikastig
Innihald
Hráefni
- 180g mjúkt smjör
- 200g Grísk jógúrt frá Örnu við stofuhita (1 lítil dós)
- 2 stór egg við stofuhita
- 1 tsk vanilludropar
- 260g hveiti
- 250g sykur
- 1 tsk lyftiduft
- 3/4 tsk matarsódi
- 1/2 tsk salt
- 3 mjög þroskaðir bananar stappaðir, mega vera á næsta stigi við múmíu
- 80g 70% súkkulaði saxað
- 80g valhnetur saxaðar gróft
Krem
- 100g mjólkursúkkulaði
- 60g suðusúkkulaði
- 2 msk smjör
- Valhnetur til skrauts
Leiðbeiningar
- Hitið ofninn í 170°C blástur
- Takið fram stóra skál og þeytið saman smjör, gríska jógúrt og sykur þar til blandan verður létt og ljós
- Setjið eitt egg út í í einu og skafið á milli. Þeytið vel.
- Setjið þurrefnin saman við ásamt bönunum. Hrærið bara rétt svo að deigið sé samlagað.
- Bætið við súkkulaði og hnetum og blandið saman með sleif.
- Smyrjið 1 stórt ílangt form eða 2 lítil. Einnig er hægt að nota bökunarpappír og klæða formin með honum.
- Setjið deigið í formið og inn í ofn í ca. 60 mín. Gæti farið upp í 70 mín ef formið er stórt. Fer eftir ofnum en fylgist bara vel með. Kakan er tilbúin þegar prjóni sem stungið er í kökuna kemur hreinn út.
- Kælið kökuna nær alveg.
- Útbúið kremið og smyrjið kökuna að ofan. Skreytið með valhnetum ef vill.
Krem
- Hitið smjörið við vægan hita, þegar það er bráðið setjið súkkulaðið út í í bitum og hrærið þar til bráðið saman. Smyrjið yfir kalda kökuna og stráið valhnetum eftir smekk yfir súkkulaðið.
Ég hef alltaf verið hrifin af öllum bakstri sem inniheldur banana. Hvort sem það eru hollari kökur og brauð eða eitthvað dísætt. Þessi kaka er nú ekki beint í hollari kantinum enda þarf það ekkert alltaf að vera þannig. Ég nota í hana gríska jógúrt frá Örnu en við það verður hún alveg einstaklega mjúk.
Þessi samsetning, bananar, súkkulaði og valhnetur mynda einhverja guðdómlega heild sem verður ekki útskýrð nema bara með því að baka þessa köku og smakka. Hún er alveg svona hversdags þar sem það er einhver grófur sveitabragur á henni en samt smá spari líka.
No items found.



