Bláberja og sítrónukaka með rjómaostakremi

120
mín
Erfiðleikastig
Innihald

Hráefni

  • 230g mjúkt smjör
  • 400g sykur
  • 4 stór egg við stofuhita
  • 2 tsk vanillu essens eða 1 tsk vanilluduft
  • 1 og 1/2 tsk sítrónudropar
  • 360g hveiti
  • 2 tsk lyftiduft
  • 1/2 tsk matarsódi
  • 1/2 tsk himalaya eða sjávarsalt
  • 1 bolli hrein ab mjólk frá Örnu, við stofuhita
  • 1/4 bolli ferskur sítrónusafi
  • rifinn sítrónubörkur af hálfri sítrónu
  • 200g fersk bláber

Rjómaostakrem

  • 100g rjómaostur við stofuhita
  • 2 msk mjúkt smjör
  • 1 bolli flórsykur
  • 1 tsk vanilludropar

Leiðbeiningar

  1. Hitið ofninn í 160°C
  2. Setjið deigið í formið og smyrjið því út. Bakið í miðjum ofni í 70 mín.
  3. Byrjið á því að þeyta saman smjör og sykur. Skafið niður á milli og þeytið áfram.
  4. Bætið við einu eggi í einu og þeytið vel á milli. Skafið niður á milli.
  5. Setjið ab mjólk, sítrónusafa og sítrónubörk út í eggjablönduna og hrærið. Bætið þá við þurrefnum og hrærið þar til deigið er rétt svo orðið samlagað, alls ekki hræra lengi.
  6. Blandið saman þurrefnum í skál og hrærið saman með písk. Setjið til hliðar.
  7. Bætið bláberjum varlega saman við með sleikju.
  8. Gerið kremið tilbúið á meðan kakan er í ofninum.
  9. Kælið kökuna alveg áður en þið losið hana úr forminu, annars á hún það á hættu að brotna eða festast í forminu.
  10. Setjið kremið á kalda kökuna og skreytið með ferskum bláberjum og röspuðum sítrónuberki.

Rjómaostakrem

  1. Þeytið rjómaost og smjör saman, bætið flórsykri og vanilludropum saman við og þeytið vel þar til kremið er létt og loftmikið.

Þessi kaka er alveg himnesk þó ég segi sjálf frá. Hún er frekar einföld í gerð, ótrúlega djúsí og bragðmikil. Ég nota ab mjólkina frá Örnu í deigið en það gerir það að verkum að hún verður alveg extra mjúk. Í henni eru einnig fersk bláber og ferskur sítrónusafi ásamt rifnum sítrónuberki sem gefur sérlega gott bragð. Rjómaostakremið er svo punkturinn yfir i -ið.

Uppskrift og myndir eru eftir Völlu í samstarfi við Örnu mjólkurvinnslu á Bolungarvík

3
3
3
No items found.

Svipaðar uppskriftir

Sjá allt
No items found.