Frönsk pippsúkkulaðikaka með piparmyntukremi

40
mín
Erfiðleikastig
Innihald

Hráefni

  • 200g hrásykur
  • 4 stór egg
  • 200g smjör
  • 100g Siríus súkkulaði með piparmyntufyllingu
  • 100g Suðusúkkulaði frá Nóa
  • 1 dl hveiti
  • 1 msk kakó
  • 1 tsk piparmyntudropar

Piparmyntukrem

  • 200g Siríus súkkulaði með pippfyllingu
  • 3-4 msk rjómi
  • 30g smjör

Leiðbeiningar

  1. Hitið ofninn í 180°C blástur.
  2. Þeytið egg og sykur saman þar til blandan er orðin mjög létt og ljós, að lágmarki 5 mínútur. Setjið piparmyntudropana saman við og hrærið áfram í örstutta stund.
  3. Bræðið saman smjör og súkkulaði í potti við vægan hita. Þegar smjörið og súkkulaðið er bráðið saman, blandið því þá varlega saman við eggjaþeytinguna með sleikju
  4. Að síðustu sigtið hveitið og kakóið saman út í blönduna og haldið áfram að blanda varlega saman með sleikjunni
  5. Klæðið 24cm smelluform með bökunarpappír og hellið deiginu í formið. Bakið í miðjum ofni í 30 mín.

Piparmyntukrem

  1. Hitið súkkulaðið og rjómann saman í potti við vægan hita. Þegar það er bráðið að mestu saman setjið smjörið saman við og leyfið að bráðna saman við. Leyfið að kólna aðeins og þykkna áður en kreminu er smurt á kökuna.

Þessi kaka er löngu orðin klassík á mínu heimili enda miklir Pipp aðdáendur. Þetta er auðvitað í grunninn klassíska franska súkkulaðikakan sem við þekkjum flest en með smá tvisti. Ýmsar útgáfur af slíkum kökum og tertum eru til en þessi er mín uppáhalds. Hún er ægilega einföld og hægt að gera hana með fyrirvara þar sem hún geymist sérlega vel í kæli.

3
3
3
3
3
3
3
3
No items found.

Svipaðar uppskriftir

Sjá allt
No items found.