Fylltar kjúklingabringur með sveppum, spínati, hvítlauksosti og pipar mozzarella

35
mín
Erfiðleikastig
Innihald

Hráefni

  • 4 kjúklingabringur
  • 1/2 sveppa box
  • 4 kubbar frosið spínat, þýtt
  • 20g smjör
  • 1/2 kryddostur með hvítlauk frá Örnu
  • 100g mozzarella með pipar frá Örnu
  • Hvítlauksduft, svartur pipar, sjávarsalt
  • panini krydd, ég notaði frá Pottagöldrum eða gott kjúklingakrydd

Leiðbeiningar

  1. Byrjið á því að skera vasa í kjúklingabringurnar
  2. Skerið sveppina í sneiðar og þýðið spínatið
  3. Setjið smjörið á pönnu og steikið sveppina þar til þeir eru farnir að brúnast. Bætið spínatinu saman við og steikið áfram í 2-3 mín.
  4. Setjið ostinn í skál og heita sveppablönduna yfir. Heitir sveppirnir bræða aðeins ostinn og þá binst þetta saman.
  5. Setjið 1/4 af blöndunni inn í hverja bringu og setjið í eldfast mót.
  6. Berið fram með sætkartöfluteningum, hrísgrjónum, salati eða hverju sem ykkur dettur í hug.
  7. Ofnbakið bringurnar á 200°C í 25 mín. e

Þessar kjúklingabringur eru alveg brjálæðislega góðar og fullkominn laugardagsréttur eða jafnvel fyrir matarboðið. Hann er ekki flókinn í gerð og tekur ekki langan tíma. Ég bar þær fram með sætkartöfluteningum en það passar jafn vel að hafa hrísgrjón og jafnvel eitthvað gott pasta. Salat og gott hvítvín væri nú heldur ekki amalegt!

3
3
3
3
3
3
3
3
No items found.

Svipaðar uppskriftir

Sjá allt
No items found.