Heiðalamb lambalæri og camenbert kartöflugratín

5
manns
120
mín
Erfiðleikastig
Innihald
  • 1 kg kartöflur
  • 50 g smjör
  • ½ laukur, skorinn í þunnar sneiðar
  • 3 hvítlauksrif, pressuð
  • 300 ml rjómi
  • 250 g camembert, skorinn í bita
  • Ferskt timían

Lambalærið

Setjið lambalærið í eldfast mót og hyljið með álpappír. Eldið við 150°C í 50 mínútur. Takið álpappírinn af, hækkið hitann í 200°C og eldið áfram í um 20 mínútur, eða þar til kjöthitamælir sýnir 70°C. Látið kjötið hvíla í 10-20 mínútur áður en það er skorið.

Aðferð

Afhýðið kartöflurnar, skerið í sneiðar og sjóðið í 10 mínútur. Kælið. Raðið kartöflum í smurt eldfast mót og setjið camembert á milli laga.

Steikið lauk í smjöri við vægan hita í 5 mínútur, bætið hvítlauk út í og steikið í um 1 mínútu. Hellið rjóma og timíani saman við og hrærið.

Hellið yfir kartöflurnar og bakið við 200°C í um 40 mínútur, eða þar til gratínið er gullinbrúnt.

Verði ykkur að góðu!

Svipaðar uppskriftir

Sjá allt
No items found.