Himneskur ofnbakaður lax með dillraspi, parmesan og sítrónu

30
mín
Erfiðleikastig
Innihald

Hráefni

  • 5-600g laxaflak
  • 80g Eat real Hummus snakk með dilli
  • 35g bráðið smjör
  • 1/2 msk raspaður sítrónubörkur
  • 1 msk sítrónusafi ferskur
  • 2 msk parmesan rifinn
  • 1 tsk þurrkuð steinselja
  • 1/2 tsk þurrkað dill
  • 1/2 tsk sjávarsalt

Einföld Mango chutney sósa

  • 1 dl Hellmann's létt majónes eða önnur svipuð
  • 2-3 kúfaðar tsk af mango chutney frá Patak's

Leiðbeiningar

  1. Hitið ofninn í 200°C blástur
  2. Setjið laxaflakið á bökunarpappír eða álpappír og setjið á ofnplötu.
  3. Setjið snakkið í matvinnsluvél og vinnið smátt. Setjið í skál og blandið restinni af innihaldsefnum saman við. Dreifið yfir laxinn og bakið í ca. 20 mín.
  4. Ég bar fram soðið perlubygg og mangó chutney sósu með en einnig er gott að hafa ferskt salat til hliðar.

Einföld Mango chutney sósa

  1. Hrærið saman í skál og berið fram með laxinum. Hentar almennt vel með fiski.

Lax er hollur og hrikalega góður, ef hann er rétt matreiddur. Það er alveg grátlegt að taka flott hráefni eins og góðan lax og eyðileggja hann með því að ofelda hann og krydda hann ekki almennilega. Þessi réttur er virkilega einfaldur og fljótlegur auk þess að vera ótrúlega bragðgóður. Það gerir alveg ótrúlega mikið að setja svona dásamlegt kryddrasp á hann. Hér myl ég niður Eat real hummus chips með dillbragði og bæti við ýmsu góðgæti. Útkoman verður einhver ótrúleg bragð og áferðar bomba!

3
3
3
3
No items found.

Svipaðar uppskriftir

Sjá allt
No items found.
No items found.