Köld fetaídýfa með grilluðu osta crostini

15
mín
Erfiðleikastig
Innihald

Hráefni

  • 1 krukka Salatfeti frá Örnu
  • 1/2 bolli hrein grísk jógúrt frá Örnu
  • 100g hreinn rjómaostur
  • 1/4 bolli ólífuolía
  • Safi og börkur af 1/2 sítrónu
  • 1/2 tsk chili flögur
  • Klípa af sjávarsalti
  • 1 msk saxað ferskt dill
  • Skreytt með saxaðri gúrku og kirsuberjatómötum í bitum

Crostini

  • 1 snittubrauð skorið skáhallt í sneiðar
  • Mjúkt smjör
  • Rifinn Mozzarella með hvítlauk frá Örnu

Leiðbeiningar

  1. Sigtið olíuna frá fetaostinum og sleppið sem mestu af lauknum og rósapiparnum.
  2. Setjið fetaostinn í skál ásamt jógúrtinni, rjómaosti, ólífuolíunni og sítrónuberkinum og safa og þeytið vel með handþeytara.
  3. Kryddið með chili, salti og dilli
  4. Setjið ídýfuna í skál og skreytið með söxuðu grænmetinu
  5. Berið fram með grilluðu crostini

Crostini

  1. Smyrjið sneiðarnar með smjörinu og setjið á ofnplötu sem klædd hefur verið bökunarpappír. Stráið mozzarella osti yfir. Stillið á grillið í ofninum og grillið þar til osturinn er orðinn gylltur, fylgist vel með.

Þessi kalda fetaostsídýfa er svo einföld og ótrúlega góð. Sítrónan og dillið passa sérlega vel með fetaostinum og það gerir mjög mikið að toppa með ferskri agúrku og söxuðum kirsuberjatómötum.

Grillaða crostinið passar svo fullkomlega með en einnig er gott að hafa saltkex eða annað ostakex með. Jafnvel dýfa grissini brauðstöngum í, það má allt og allt hægt.

Ídýfan er fullkomin á veisluborð, í partíið eða saumaklúbbinn!

Uppskrift unnin af Völlu í samstarfi við Örnu mjólkurvinnslu

3
3
3
3
No items found.

Svipaðar uppskriftir

Sjá allt
No items found.