Krydduð rúlluterta með rjómakremi

45
mín
Erfiðleikastig
Innihald

Hráefni

  • 3 stór egg
  • 100g sykur
  • 60g hveiti
  • 2 msk kartöflumjöl
  • 1 msk kakó
  • 2 tsk kanill
  • 1 tsk negull
  • 1/2 tsk matarsódi

Rjómakrem

  • 3dl rjómi frá Örnu
  • 100g flórsykur
  • 1 tsk vanilludropar

Leiðbeiningar

  1. Setjið egg og sykur saman í hrærivélaskál og þeytið í alveg 10 mín. Freistist ekki til að stytta tímann, það er mikilvægt að þessi blanda þeytist mjög vel.
  2. Hitið ofninn í 230° blástur
  3. Setjið þurrefni saman í skál og sigtið 1/3 út í eggjablönduna og blandið varlega saman við með sleikju, setjið 1/3 í viðbót saman við þeytinguna og blandið varlega saman. Klárið að sigta þurrefnin saman við og blandið varlega saman við.
  4. Setjið bökunarpappír á bökunarplötu og smyrjið deiginu á plötuna með sleikju eða pönnukökuspaða.
  5. Bakið í miðjum ofni í 6 mín. Fylgist vel með þar sem ofnar eru misjafnir.
  6. Takið botninn út og kælið alveg áður en kremið er sett á. Gott er að setja hreint viskastykki yfir botninn á meðan hann kólnar svo hann harðni ekki um of.
  7. Smyrjið kreminu á botninn og rúllið kökunni varlega upp. Snyrtið kantana ef vill og dustið flórsykri yfir.

Rjómakrem

  1. Setjið rjómann og vanilludropa saman í skál og þeytið, þegar rjóminn byrjar að þykkna bætið sykrinum saman við og þeytið þar til rjóminn er stífþeyttur en varist að þeyta of mikið svo að hann verði ekki að smjöri. Smyrjið á kaldan botninn og rúllið upp.

Ég hef alltaf verið mjög hrifin af rúllutertum og elska að baka þær, það er nefnilega miklu einfaldara en maður skyldi halda. Yfirleitt er baksturstíminn mjög stuttur og þær eru fljótar að kólna svo það er hægt að fullklára þær á stuttum tíma. Þessi er tilbrigði við lagtertuna góðu en hún er léttari í sér og með rjómakremi í stað smjörkrems. Ég nota hér laktósafría rjómann frá Örnu sem er kominn í svo fallegar jólaumbúðir. Þessi dásamlega terta er svo góð og falleg. Ég mæli með að prófa þessa á aðventunni og bjóða fram með góðu kaffi.

3
3
3
3
No items found.

Svipaðar uppskriftir

Sjá allt
No items found.
No items found.