
Ljúffeng páskamáltíð
6
manns
240
mín
Erfiðleikastig
Innihald
- 1 kg kartöflur
- 50 g smjör
- ½ laukur, skorinn í þunnar sneiðar
- 3 hvítlauksrif, pressuð
- 300 ml rjómi
- 250 g camembert, skorinn í bita
- Ferskt timían
Lambalærið
Setjið lambalærið í eldfast mót og hyljið með álpappír. Eldið við 150°C í 50 mínútur. Takið álpappírinn af, hækkið hitann í 200°C og eldið áfram í um 20 mínútur, eða þar til kjöthitamælir sýnir 70°C. Látið kjötið hvíla í 10-20 mínútur áður en það er skorið.
Aðferð
Afhýðið kartöflurnar, skerið í sneiðar og sjóðið í 10 mínútur. Kælið. Raðið kartöflum í smurt eldfast mót og setjið camembert á milli laga.
Steikið lauk í smjöri við vægan hita í 5 mínútur, bætið hvítlauk út í og steikið í um 1 mínútu. Hellið rjóma og timíani saman við og hrærið.
Hellið yfir kartöflurnar og bakið við 200°C í um 40 mínútur, eða þar til gratínið er gullinbrúnt.
Verði ykkur að góðu!
No items found.
No items found.