
Lúxus caesar salat með kornflexkjúklingi
4
manns
Innihald
Kornflexkjúklingur
- 600 g kjúklingalundir frá Rose Poultry
- 2 dl súrmjólk
- salt og pipar
- 100 g Kornflex
- 100 g brauðrasp
- 1 msk hveiti
- 1 tsk hvítlauksduft
- 1 tsk paprikukrydd
- salt og pipar
- ólífuolía
Salatið
- Brauðteningar
- 1 stórt salathöfuð, iceberg eða romaine (eða blanda af báðu)
- 250 g beikon, eldað stökkt
- parmesan, rifinn
Dressing
- 200 g sýrður rjómi
- 100 g Heinz majones
- 1-2 sardínur úr dós
- safi frá 1/2 sítrónu
- 1 hvítlauksrif
Leiðbeiningar
- Setjið súrmjólk, salt og pipar í skál og leggið kjúklinginn þar í. Marinerið í 30 mínútur.
- Myljið Kornflexið í matvinnsluvél eða með töfrasprota þar til það er næstum því fínmalað. Blandið því með brauðraspi, hveiti, hvítlauksdufti, paprikukryddi, salti og pipar. Veltið kjúklinginum upp úr kurlinu og leggi á ofnplötu með bökunarpappír.
- Hitið olíu á pönnu og steikið kjúklingabitana við miðlungshita í 5 mínútur á hvorri hlið eða þar til kjúklingurinn er eldaður í gegn.
- Dressing: Blandið öllum hráefnunum saman í matvinnsluvél eða blandara og smakkið til með salti eða pipar. Dressingin geymist í nokkra daga.
- Rífið salatið niður og setjið í stórt fat. Setjið kjúklingabitana þar yfir, þá stökkt beikon, brauðteningar, rifinn parmesan og að lokum dreypið þið dressingu yfir allt salatið. Berið strax fram.
No items found.
No items found.