Marsípan sörur með saltkaramellukremi og Dumle

Erfiðleikastig
Innihald

Botn

  • 250g Ren ra marsípan
  • 2 eggjahvítur
  • 1 dl sykur

Krem

  • 200 g mjúkt smjör
  • 2 eggjarauður
  • 1 tsk vanilludropar
  • ½ dl Saltkaramella (hægt að kaupa þykka karamellusósu (Dulce de leche) og bæta smá salti
  • 2 - 3 dl flórsykur
  • 20 Dumle karamellur, saxaðar smátt

Hjúpur

  • 300 g Milka mjólkursúkkulaði

Leiðbeiningar

  1. Hitið ofninn í 180°C.
  2. Þeytið eggjahvítur með sykrinum þar til blandan er orðin eins og marengs. Rífið þá marsípanið út í með rifjárni og blandið saman með sleikju þar til blandan er eins og deig.
  3. Setjið deigið í sprautupoka með hringstút og sprautið litlar kökur á plötu klædda bökunarpappír. Hafið kökurnar sirka 3cm í þvermál. Megið alveg hafa þær stærri en þessar kökur eru eins og konfekt svo mér finnst henta betur að hafa þær minni. 0-13 mín eða þangað til þeir verða ljósgylltir
  4. Kremið: Þeytið smjörið fyrst og bætið svo rest út í fyrir utan karamellurnar. Þeytið kremið vel þar til það er létt og ljóst. Alltaf gott að þeyta krem mjög lengi. Setjið saxaðar karamellurnar út í síðast og hrærið saman með sleikju.
  5. Smyrjið kreminu á kaldar kökurnar og setjið í frysti að lágmarki 30 mín.
  6. Bræðið súkkulaðið í vatnsbaði eða í örbylgjunni. Hjúpið hverja köku og frystið aftur.
  7. Þessar geymast best í frysti en mæli með að taka þær út með smá fyrirvara áður en þær eru bornar fram þar sem karamellurnar í kreminu verða mjög harðar.

Gerir um 40 stk

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Innnes

3
3
No items found.

Svipaðar uppskriftir

Sjá allt
No items found.
No items found.