Ofnbökuð ítölsk ostaídýfa

30
mín
Erfiðleikastig
Innihald

Hráefni

  • 1 kúla ferskur mozzarella, rifinn
  • 1 1/2 dl parmesaostur, rifinn
  • 200 g Philadelphia rjómaostur
  • 1 tsk ítalskt krydd
  • 1/2 tsk chilikrydd
  • sjávarsalt
  • 1/2 - 1 box kirsuberjatómatar
  • 1 hvítlauksrif, saxað smátt
  • ferskt steinselja, söxuð
  • extra virgin ólífuolía, t.d. frá Philippo Berio

Leiðbeiningar

  1. Blandið mozzarella, parmesan, rjómaosti og kryddum saman í skál og hrærið vel. Setjið ídýfuna í ofnfast mót.
  2. Látið í 200° heitan ofn og bakið í 15 mínútur eða þar til osturinn er byrjaður að búbbla og orðinn örlítið gylltur á lit.
  3. Skerið tómata og hvítlauk niður og blandið saman. Setjið yfir ídýfuna síðustu 5 mínútur eldunartímans.
  4. Takið úr ofni og hellið góðri ólífuolíu yfir allt og endið á að strá steinselju yfir.
  5. Saltið og kryddið með chilíkryddi og berið fram með ristuðu baquette eða kexi.

Færslan er unnin í samvinnu við Innnes

3
3
3
No items found.

Svipaðar uppskriftir

Sjá allt
No items found.