
Pönnukökur með piparkökukaramellu og pekanhnetu krókant
Hráefni
- 1 bolli hafrahveiti (haframjöl sett í blandara og malað þar til fínt)
- 1/4 bolli hveiti
- 1 tsk lyftiduft
- 1/2 tsk matarsódi
- 1/2 tsk sjávarsalt
- 3 msk sykur
- 2 stór egg við stofuhita
- 1 bolli grísk jógúrt hrein frá Örnu
- 1 msk nýmjólk frá Örnu
- 2 tsk vanilludropar
Piparkökukaramella
- 200g sykur
- 90g smjör í bitum
- 1/2 bolli rjómi frá Örnu
- 2 tsk kanill
- 1 tsk negull
- 1/2 tsk engifer
- Sjávarsalt á hnífsoddi
- Bræðið sykur við vægan hita. Þegar allur sykurinn er bráðinn og kominn gylltur litur á hann bætið smjörinu út í, hrærið rösklega og blandið rjómanum út í. Hrærið saman þar til karamellan er samfelld. Bætið kryddum út í ásamt salti og hrærið vel. Setjið í hreinar krukkur, það er alveg tilvalið að nota krukkurnar undan haustjógúrtinni undir karamelluna.
Pekanhnetu krókant
- 100g sykur
- 1 msk vatn
- 100g pekanhnetur
Leiðbeiningar
- Malið hafrana og setjið í skál ásamt öðrum þurrefnum.
- Setjið gríska jógúrt, eggin, og vanilludropana saman við og hrærið þar til kekkjalaust. Látið deigið bíða í nokkrar mínútur og bætið þá 1 msk af nýmjólk saman við. Leyfið deiginu aðeins að standa en það þykknar við það.
- Bakið pönnukökurnar við meðalhita og raðið þeim á grind á meðan þið bakið úr restinni af deiginu. Raðið á disk og berið fram með piparkökukaramellunni og pekanhnetu krókanti.
Pekanhnetu krókant
- Setjið sykurinn og vatn á pönnu og bræðið. Þegar sykurinn er farinn að gyllast blandið hnetunum saman við og veltið þeim upp úr bræddum sykrinum. Veltið þeim vel og vandlega og gætið þess að þær séu vel húðaðar. Setjið bökunarpappír á disk og hellið hnetunum út á pappírínn. Dreifið úr þeim eins og hægt er og kælið. Saxið þær niður í þá stærð sem þið kjósið og berið fram með pönnukökunum. Ég mæli einnig með að geyma restina í lokuðu boxi og setja út á ís t.d.
Þetta er líklega eitt það allra rosalegasta sem hefur komið úr mínu eldhúsi. Það er best að gera karamelluna fyrst og hana má gera með góðum fyrirvara. Eins er pekanhnetu krókantið eitthvað sem geymist vel og hægt gera með góðum fyrirvara líka. Þessar pönnukökur eru dásamlegar á jóla bröns borðið en einnig frábær eftirréttur en þá væri afbragð að bera fram ís eða rjóma með þeim. Karamellan ber áberandi bragð af piparkökum og pekanhneturnar passa fullkomlega saman við. Í pönnukökunum eru malaðir hafrar sem gefa þeim einstakt bragð sem og grísk jógúrt sem gerir þær extra mjúkar. Það er vissulega hægt að bera hvað sem er með fram með þeim en nákvæmlega þessi samsetning er algjörlega fullkomin.





