
Súkkulaðimuffins með rjómaostasúkkulaðikremi
Innihald
Hráefni
- 100 g súkkulaði, saxað
- 250 g hveiti
- 225 g hrásykur (eða púðusykur)
- 50 g kakó
- 1 tsk vanillusykur
- 1 tsk matarsódi (natron)
- 100 g smjör, brætt
- 3,75 dl ab mjólk, t.d. frá Mjólka
- 1 egg
Rjómaostasúkkulaðikrem
- 160 g súkkulaði
- 80 g smjör
- 160 g rjómaostur, t.d. Philadelphia
- Oreokex, söxuð eða mulinn
Leiðbeiningar
- Blandið öllum þurru hráefnunum saman í skál ásamt og 2/3 af súkkulaðinu
- Í aðra skál blandið öllum blautu hráefnunum saman og hellið síðan saman við þurrefnin og hrærið þar til allt hefur blandast saman en ekki of lengi.
- Skiptið deiginu niður á 12 muffins form og stráið súkkulaðinu yfir.
- Bakið í 200°c heitum ofni í 13-15 mínútur.
- Bræðið súkkulaði og smjör saman við vægan hita. Takið af hitanum og kælið.
- Þegar blandan hefur kólnað hrærið þá saman við rjómaostinum.
- Setjið kremið á kökurnar þegar þær hafa kólnað. Stráið Oreokexi yfir.
Leit minni af einföldum, fljótlegum en um leið virkilega bragðgóðum súkkulaðimuffins er lokið. Þessar slógu í gegn hjá mér og öllum fjölskyldumeðlimum og verða bakaðar mjög fljótlega aftur. Þessar eru flottar í barnaafmælið, veisluna og lautarferðina - svo eitthvað sé nefnt.
No items found.

