Tortillur með nautahakki, mexíkóosti og nachos

4
manns
45
mín
Erfiðleikastig
Innihald

Hráefni

  • olía til steikingar
  • 500 g nautahakk
  • 2 tsk Mexíkaninn tacokrydd
  • 1 rauð paprika, smátt skorin
  • 1 krukka salsasósa
  • 1/2-1 mexíkó-ostur, skorinn í litla teninga
  • 6-8 tortillur, mæli með tortillum frá Mission
  • nachos flögur
  • rifinn mozzarellaostur

Leiðbeiningar

  1. Hitið olíu á pönnu og brúnið nautahakkið. Brúnið nautahakkið og kryddið með tacokryddinu.
  2. Skiptið blöndunni á tortillurnar og myljið nachosi yfir. Lokið þeim og stráið mozzarellaosti yfir.
  3. Hellið salsasósu saman við og blandið vel saman.
  4. Setjið að lokum rauðlauk, papriku og mexíkóost og hitið í 1-2 mínútur.
  5. Látið í 175°c heitan ofn í 20 mínútur.

Þessar tortillur eru í miklu uppáhaldi hjá mér og mínum börnum. Reyndar verð ég að minnast á það að sonur minn bað mig vinsamlegast um að hætta að segja að eitthvað sé í uppáhaldi hjá honum á GRGS því það væri alltaf að koma til hans fólk sem sagðist hafa eldað uppáhalds réttinn hans. Hahah - "point taken". En engu að síður frábær uppskrift og ofureinföld.

MEXÍKANINN TACOKRYDDER ÖNNUR KRYDDBLANDA FRÁ GRGS GERÐ Í SAMVINNU VIÐ KRYDDHÚSIÐ SEM FRAMLEIÐIR HÁGÆÐA KRYDDBLÖNDUR. INNIHELDUR HVORKI SALT NÉ SYKUR. MEXÍKANINN FÆST Í HAGKAUP, FJARÐARKAUP, MELABÚÐINNI OG VÆNTANLEGUR Í KRÓNUNA.

Mælum með því að gera þetta ofureinfalda guagamole með réttinum

Njótið vel!

Berglind xxxBerglind@grgs.is

3
3
3
3
3
No items found.

Svipaðar uppskriftir

Sjá allt
No items found.