Truflað fajitas með tempura risarækjum, mango salsa og chipotle sýrðum rjóma

40
mín
Erfiðleikastig
Innihald

Hráefni

  • Litlar eða miðlungsstórar tortillur
  • 1 poki frosnar risarækjur, um 450g.
  • 1 bréf fajitas krydd
  • 1 msk vatn
  • Mangó salsa, uppskrift fylgir
  • Steikt grænmeti, uppskrift fylgir
  • Þroskað avocado í bitum
  • Kokkteiltómatar skornir
  • Chipotle sýrður rjómi, uppskrift fylgir
  • Ferskt kóríander

Tempura deig

  • ½ bolli hveiti
  • ½ bolli maizena mjöl
  • 2 tsk lyftiduft
  • ½ tsk sjávarsalt
  • ¼ tsk hvítur pipar
  • ¾ dós sódavatn eða pilsner

Mangó salsa

  • 1 þroskað mangó, skorið í litla teninga
  • ¼ rauðlaukur, smátt skorinn
  • ½ grænt chili, smátt skorið
  • Ferskt kóríander eftir smekk

Chipotle sýrður rjómi

  • 1 dós 18% sýrður rjómi frá MS
  • 2 tsk Chipotle mauk
  • Salt eftir smekk
  • Sýrðum rjóma og chipotle mauki hrært saman og smakkað til með smá salti. Geymið í kæli.
  • Steikt fajitas grænmeti:
  • 1 rauð paprika, skorin í sneiðar
  • ½ rauðlaukur, skorinn í sneiðar
  • Ólífuolía
  • Salt og pipar

Leiðbeiningar

  1. Affrystið rækjurnar og setjið í skál ásamt vatni og kryddi. Marinerið í 30 mín að lágmarki. Útbúið tempuradeig samkvæmt uppskrift.
  2. Hitið djúpsteikingarpott upp í 180°C eða olíu í þykkbotna potti upp í sama hitastig.
  3. Útbúið grænmeti, salsa og sósuna og setjið í kæli.
  4. Steikið rækjurnar og leggið á eldhúspappír.
  5. Raðið á tortillakökurnar, steiktu grænmeti, mangó salsa, rækjum, tómötum, avocado, chipotle sýrðum rjóma og ferskum kóríander.

Tempura deig

  1. Blandið saman þurrefnum og hrærð vökvanum saman við. Látið bíða í allavega hálftíma. Dýfið rækjunum út í deigið og djúpsteikið. Ég nota djúpsteikingarpott en einnig er hægt að hita olíu í þykkbotna potti upp í 180°C. Það tekur örskamma stund að steikja rækjurnar, fylgist vel með. Setjið beint á eldhúsbréf þegar þær koma úr pottinum.

Mangó salsa

  1. Afhýðið mangóið og skerið í litla bita, setjið í skál. Saxið laukinn, chili og kóríander og setjið saman við. Kælið.

Chipotle sýrður rjómi

  1. Setjið smá slettu af ólífuolíu á pönnu. Setið paprikuna og laukinn út á og saltið og piprið. Steikið við vægan hita þar til laukurinn er farinn að brúnast og paprikan orðin mjög mjúk. Tekur alveg um 10 – 15 mín.

Það er eitthvað svo sumarlegt og ferskt við taco og fajitas. Það er líka eitthvað svo sérlega skemmtilegt við að bera þetta fram, hvort sem er fyrir fjölskylduna eða í matarboðum. Þá getur hver valið fyrir sig og stjórnað svolítið sínu. Ég er hér með djúpsteiktar risarækjur í tempura sem marineraðar eru í fajitast kryddblöndu. Þó ég segi sjálf frá er þetta algjörlega truflað. Parað með chipotle sýrðum rjóma, fajitas grænmetisblöndu og fersku grænmeti er þetta einhver samsetning sem sprengir alla skala. Þennan rétt verðið þið bara að prófa og það sem fyrst!

3
3
3
3
3
3
3
3
3
No items found.

Svipaðar uppskriftir

Sjá allt
No items found.