Hráefni
- 200g linguine pasta (eða spaghetti)
- 400g Whole cherry tomato with chili pastasósa frá Sacla
- 1/2 geiralaus hvítlaukur, smátt saxaður
- 10 svartar heilar ólífur, skornar í fernt
- 1 msk kapers, skolað undir köldu vatni
- 3 ansjósuflök, skorin smátt
- 1/4 tsk chiliflögur
- 50ml pastavatn
- salt, pipar
- 1 tsk þurrkað oregano
Leiðbeiningar
- Saxið hvítlauk. Saxið ansjósur, skerið ólífur og skolið kapers.
- Hitið vatn í potti fyrir pastað og saltið ríflega.
- Setjið ólífuolíu á pönnu og steikið hvítlaukinn í ca. 1 mínútu eða þar til hann fer aðeins að brúnast.
- Bætið þá við ansjósum, ólífum, kapers og chiliflögum. Leyfið þessu að malla í 2-3 mín á pönnunni.
- Setjið pastað í pottinn og stillið tímann á 10 mín.
- Setjið pastasósuna út á pönnuna og kryddið með salti, pipar og oregano. Látið malla þann tíma sem pastað tekur að sjóða. Þegar pastað er tilbúið, takið pastavatnið frá og hellið vatninu af.
- Hellið pastanu ásamt pastavatninu sem tekið var frá út á pönnuna og veltið vandlega með 2 áhöldum eins og sleifum eða töngum. Berið strax fram.
Þessi réttur er gömul ítölsk klassík sem á rætur sínar að rekja til Napólí. Sósan samanstendur af tómötum, ansjósum, svörtum ólífum, kapers, hvítlauk, chili auk steinselju og oregano. Það tekur mjög skamman tíma að skella í þennan pastarétt og sósan fær að malla á meðan pastað sýður. Sósan er bragðmikil þrátt fyrir að innihalda ekki mörg hráefni. Mörgum þykir kannski ólystug hugmynd að setja ansjósur í pastasósu en ansjósurnar gefa unaðslegt umami bragð sem nánast ómögulegt er að skipta út. Í rauninni notaðar sem krydd frekar en nokkuð annað og ég mæli ekki með því að freistast til að sleppa þeim. Það er hægt að frysta afgangs ansjósuflök í litlu boxi.
Í stað þess að nota niðursoðna tómata nota ég hérna Sacla whole cherry tomato pastasósu. Hún er mjög hrein og inniheldur nánast bara kirsuberjatómata sem hafa aðeins verið kryddaðir. Fullkomin í allskonar pastarétti og sé fyrir mér að hún gæti verið stórkostleg í bolognese og lasagna einnig.














