Hreint

Hreint

Glúteinlaust

Glúteinlaust

Sparnaður

Sparnaður

Íslensk kjötsúpa

4
manns
70
mín
Erfiðleikastig
Innihald
  • 1,5 kg íslenskt lambasúpukjöt á beini
  • 2-2,5 l vatn
  • 4-5 kartöflur
  • ½ rófa
  • 3-4 gulrætur
  • ¼-½ hvítkálshaus
  • 1 laukur
  • ¾ dl súpujurtir
  • ½ dl hrísgrjón
  • Salt og pipar eftir smekk

Aðferð:

Setjið lambakjötið í stóran pott og hellið köldu vatni yfir. Hitið rólega að suðu og fleytið froðunni sem kemur upp á yfirborðið.

Látið kjötið malla við vægan hita í um 30 mínútur.

Skerið skrældar kartöflur, rófu, gulrætur og lauk í hæfilega bita. Bætið út í pottinn ásamt hrísgrjónum eða hafragrjónum og látið malla áfram í um 20 mínútur.

Skerið hvítkálið gróft og bætið því út í ásamt súpujurtunum. Látið malla áfram í 15-20 mínútur, eða þar til kjötið er meyrt og grænmetið soðið í gegn.

Smakkið til með salti og pipar.

Góð í dag og jafnvel betri á morgun!

Svipaðar uppskriftir

Sjá allt