Innihald
Hráefni
- Salat að eigin vali, ég notaði lífrænt salat
- Kokkteiltómatar skornir í tvennt
- 1/2 rauðlaukur þunnt sneiddur
- Fræ úr granateplum
- Eat real Hummus snakk með tómat og basil
- 1 dós kjúklingabaunir frá Rapunzel
- 1 tsk paprikuduft
- 1/2 tsk chili duft
- 1/2 tsk hvítlaukssalt
- Svartur pipar eftir smekk
Leiðbeiningar
- Hitið ofninn í 200°C
- Sigtið og skolið baunirnar og þerrið. Setjið þær í skál og stráið kryddinu yfir. Setjið ólífuolíuna útí og blandið saman. Dreifið úr baununum á bökunarplötu klædda bökunarpappír og bakið í 20 - 30 mín. Hrærið í þeim 2-3 á tímanum.
- Skerið grænmetið og raðið í skál. Þið eruð ekkert bundin af því sem ég nota. Ég notaði það sem ég átti til.
- Þegar baunirnar eru tilbúnar, takið þær útúr ofninum og látið mesta hitann rjúka úr þeim. Setjið þær yfir salatið og myljið snakkið yfir.
Þegar við ætlum að útbúa ferskt salat sem aðal máltíð er mikilvægt að blanda saman ólíkum áferðum og brögðum. Mér finnst skipta máli að það sé eitthvað í því sem þyngir það líkt og eitthvað gott prótín eða baunir og svo líka eitthvað stökkt eins og brauðteningar eða snakk.
Það er algjör snilld að mylja Eat real Hummus snakkið yfir salöt eða vefjur en það er vegan og lífrænt og því óhætt fyrir öll að fá sér nóg af því.
[contact-form][contact-field label="Nafn" type="name" required="true" /][contact-field label="Tölvupóstur" type="email" required="true" /][contact-field label="Vefur" type="url" /][contact-field label="Efni" type="textarea" /][/contact-form]





.jpg)











































































