Barnvænt

Barnvænt

Hollt

Hollt

Keto

Keto

Grísk skál með marineruðum kjúklingi, avocadosalati og tzatziki jógúrtsósu

50
mín
Erfiðleikastig
Innihald

Hráefni

  • 1 dl grísk jógúrt frá MS Gott í matinn
  • ½ dl ólífuolía
  • 1 geiralaus hvítlaukur
  • 1 skallottlaukur fínt saxaður
  • 1 tsk reykt paprikuduft
  • 2 tsk þurrkað oregano
  • 1 tsk sjávarsalt
  • ½ tsk nýmalaður svartur pipar
  • 700g beinlaust kjúklingakjöt skorið í bita

Avocadosalat

  • 2 avocado skorin í bita
  • ½ agúrka skorin í bita
  • Rauðlaukur, magn eftir smekk, skorinn þunnt
  • Kokkteiltómatar skornir, magn eftir smekk
  • Jöklasalat, skorið í strimla
  • 1 krukka Salatostur frá MS Gott í matinn, olía síuð frá

Tzatziki jógúrtsósa

  • 230g grísk jógúrt frá MS Gott í matinn eða restin úr heilli dós
  • ½ agúrka, rifin á rifjárni + ½ tsk salt
  • 1 msk ferskur sítrónusafi
  • 1-2 hvítlaukrif marin
  • ½ tsk þurrkað dill
  • Salt eftir smekk

Leiðbeiningar

  1. Blandið saman í skál jógúrt, olíu, hvítlauk, skallottlauk, reyktu paprikudufti, oregano, salti og pipar.
  2. Skerið kjúklinginn í bita og setjið í jógúrtmarineringuna. Marinerið í að minnsta kosti 30 mín.
  3. Hitið ofninn í 200°C. Raðið bitunum á bökunarplötu og bakið í 10 mín, snúið bitunum við og bakið áfram í 5 mín. Í lokin er gott að stilla á grillið í ofninum og brúna kjúklinginn í 1-2 mín.
  4. Á meðan kjúklingurinn er í ofninum er gott að skera grænmetið í salatið og raða því á bakka eða í skálar, allt eftir því hvort fólk fái sér sjálft af hverju grænmeti eins og um salatbar væri að ræða eða salatinu blandað í stóra skál og toppað með kjúklingnum og sósu.

Tzatziki jógúrtsósa

  1. Rífið agúrkuna á rifjárni, setjið í skál og stráið salti yfir. Setjið í sigti og látið safann renna af í ca. 15 mín. Hrærið saman jógúrt, sítrónusafa, hvítlauk og dilli. Þegar mesti safinn er runninn af agúrkunni þrýstið þá skeið ofan á og kreistið sem mest af safanum úr. Blandið saman við jógúrtblönduna. Geymið í kæli þar til salatið er borið fram.

Matarmikil salöt hafa alltaf verið í miklu uppáhaldi hjá mér og þetta er líklega í efstu þremur sætunum. Grísk matargerð er svo dásamleg, fersk, einföld hráefni og góð krydd. Það tekur ekki langan tíma að græja þetta salat og enn styttri tíma ef kjúklingurinn er tilbúinn í marineringunni þegar á að baka hann. Ég nota gríska jógúrt hvorutveggja í marineringuna og í tzatziki sósuna og ein dós passar akkúrat í uppskriftina. Ferskt salatið ásamt bragðmiklum kjúklingnum, salatostinum, sem á rætur sínar að rekja til Grikklands og sósunni góðu gerir þetta að fullkominni blöndu.

Þetta er svo alveg tilvalinn réttur í „meal prep“ og hægt að elda kjúklinginn fyrir nokkra daga og eiga sósuna til í kæli.

3
3
3
3
3
3
3
3
No items found.

Svipaðar uppskriftir

Sjá allt