Barnvænt

Barnvænt

Rice Krispies nammiterta með piparkúlum, Nóakroppi og lakkrískremi

75
mín
Erfiðleikastig
Innihald

Hráefni

  • 100g smjör
  • 100g suðusúkkulaði frá Nóa Siríus
  • 150g Piparkúlur frá Nóa Siríus
  • 4 msk sírópið í grænu dósunum
  • 200g Rice Krispies
  • 1 peli rjómi ofan á
  • Nóa kropp eftir smekk

Piparkúlukrem

  • 150g Piparkúlur frá Nóa Siríus
  • 50ml rjómi
  • 20g smjör
  • Bræðið saman í potti og látið kólna aðeins.

Leiðbeiningar

  1. Bræðið smjör, suðusúkkulaði, piparkúlur og síróp saman í potti þar til allt er orðið samlagað og bráðið.
  2. Setjið Rice krispies í skál og hellið blöndunni yfir og blandið saman með sleikju. Klæðið 20-22cm smelluform með bökunarpappír og þrýstið blöndunni í formið. Kælið vel.
  3. Þeytið rjómann og setjið á kaldan botninn. Dreifið kreminu yfir og stráið Nóa kroppi yfir eftir smekk

Þessi kaka er ein sú rosalegasta í seinni tíð! Piparkúlurnar frá Nóa gegna hér veigamiklu hlutverki með Rice krispies morgunkorni en að viðbættum rjóma, Nóa kroppi og lakkrískremi verður þetta algjör bomba. Þessa þarf ekki að baka frekar en flestar Rice krispies kökur og er því fljótleg og þægileg. Hún passar sérlega vel á veisluborðið eða í saumaklúbbinn.

3
3
3
3
3
3
3
3
No items found.

Svipaðar uppskriftir

Sjá allt