Barnvænt

Barnvænt

Allra besti Toblerone ísinn

320
mín
Erfiðleikastig
Innihald

Hráefni

  • 5 egg aðskilin
  • 65g sykur
  • 1/2 l. Rjómi frá Örnu, þeyttur
  • 360g Toblerone (1 stórt stykki)

Toblerone sósa

  • 200g saxað Toblerone
  • 1 dl rjómi frá Örnu, gæti þurft meira ef þið viljið sósuna þynnri

Leiðbeiningar

  1. Aðskilið eggin og takið hvíturnar frá.
  2. Þeytið eggjarauður og sykur vel saman þar til létt og ljóst.
  3. Bræðið 200g af toblerone yfir vatnsbaði og saxið rest.
  4. Stífþeytið rjómann í einni skál og stífþeytið eggjahvíturnar í annarri.
  5. Kælið brædda toblerone-ið aðeins og blandið því varlega saman við eggjarauðu blönduna.
  6. Hrærið rjómanum varlega saman við eggjarauðublönduna ásamt söxuðu toblerone-i.
  7. Að síðustu hrærið þið varlega stífþeyttu eggjahvítunum vel en varlega saman við ísblönduna með sleikju. Skiptið í form og frystið í að minnsta kosti 5 tíma en helst yfir nótt.

Toblerone sósa

  1. Setjið rjóma í pott og hitið rjómann að suðu. Bætið toblerone-i saman við og hrærið vel saman við vægan hita. Þegar súkkulaðið er brætt er sósan tilbúin.

Þessi uppskrift af Toblerone ís er sú allra besta sem ég hef prófað. Ætli það séu ekki svona 10 ár síðan ég gerði hana fyrst og án undantekninga er ég beðin um uppskriftina. Ég held að ástæðan sé tvíþætt. Annars vegar nota ég eggjahvíturnar líka og stífþeyti þær og hræri varlega saman við ísblönduna í lokin, hinsvegar er bara mjög mikið Toblerone í henni, bæði brætt og saxað. Og síðan en ekki síst hef ég notað Örnu rjómann síðan hann kom á markað og því er ísinn ekki eins þungur í magann en mér finnst muna miklu að nota laktósafrían rjóma.

Þessi uppskrift er frekar stór og ég mæli með að setja blönduna í 2 meðalstór form eða bara skipta niður í þau form sem ykkur hugnast.

Og svo til þess að toppa þetta algerlega mæli ég með súpereinfaldri Toblerone sósu með.

Fullkominn í áramótaboðið!

Gleðilegt nýtt ár kæru vinir og takk fyrir samfylgdina á árinu sem er að líða!

3
3
3
3
3
No items found.

Svipaðar uppskriftir

Sjá allt