Vatnsdeigsbollur með cappuccino fyllingu, saltkaramellu og Noir kexi

60
mín
Erfiðleikastig
Innihald

Hráefni

  • 2dl vatn
  • 80g smjör
  • 125g hveiti
  • Salt á hnífsoddi
  • 2-3 egg
  • Saltkaramellusósa, sjá uppskrift
  • Noir kex frá Frón

Cappuccino fylling

  • 1 peli þeytanlegur hafrarjómi eða venjulegur rjómi
  • 2 tsk instant kaffi
  • 3-4 msk flórsykur
  • 1 tsk vanilludropar
  • Nokkur saltkorn

Saltkaramella

  • 200g sykur
  • 90g smjör í bitum
  • 120ml rjómi
  • 1 tsk sjávarsalt
  • Bræðið sykur við vægan hita og hrærið stöðugt í. Þegar sykurinn er bráðinn og orðinn vel gylltur, jafnvel svona

Leiðbeiningar

  1. Hitið vatn í potti og bætið smjöri saman við. Látið sjóða í smá stund.
  2. Setjið hveiti og salt saman við og hrærið rösklega saman í pottinum.
  3. Kælið deigið með því að setja það í hrærivélaskálina og dreifa því upp á skálarbrúnirnar.
  4. Setjið egg í mælikönnu og pískið saman. Ef eggin eru mjög stór er ekki víst að það þurfi alveg 3 egg svo það er betra að píska þau saman og skilja smá eftir.
  5. Þegar deigið er orðið volgt má byrja að hræra það með káinu og setja eggin út í í smá skömmtum.
  6. Hitið ofninn í 175°C blástur. Setjið deigið á plötu klædda bökunarpappír með góðu millibili. Stærðin fer eftir smekk en mér finnst best að nota sprautuboka en einnig er fínt að nota matskeiðar.
  7. Setjið plöturnar inn og bakið í að minnsta kosti 30 mín. Ég fer jafnvel alveg upp í 40 mín þar sem ég vil hafa þær frekar þurrar og þannig eru líka minni líkur á því að þær falli. Aldrei opna ofninn fyrr en eftir a.m.k 25 mín!
  8. Samsetning:
  9. Útbúið karamelluna og cappuccino fyllinguna. Myljið nokkrar Noir kexkökur.
  10. Skerið bollurnar í tvennt, dreifið saltkaramellu í botninn, sprautið cappuccino fyllingunni á botninn, dreifið muldu Noir kexi yfir og setjið lokið öfugt ofan á. Sprautið fyllingu ofan í lokið, dreifið saltkaramellu yfir ásamt muldu kexi. Stingið hálfri Noir kexköku í fyllinguna til skrauts.

Cappuccino fylling

  1. Setjið rjómann í skál og stráið instant kaffi yfir. Bíðið í nokkrar mínútur. Setjið þá flórsykur, vanilludropa og saltkorn saman við og þeytið þar til rjóminn verður stífur.

Allt með kaffibragði er gott og ég stend og fell með því. Þessa dagana er framboð á bollum í hámarki enda örstutt í bolludaginn. Þessi klassíska með sultu, rjóma og súkkulaðiglassúr á alltaf sinn sess á mínu heimili en svo er gaman að leika sér að allskonar fyllingum sem passa í klassísku vatnsdeigsbollurnar. Hérna útbjó ég alveg dásamlega fyllingu með ríkulegu kaffibragði og passar alveg sérlega vel með karamellunni og Noir kexinu frá Frón en það er hjúpað himnesku belgísku súkkulaði sem setur alveg punktinn yfir i-ið.

Gleðilegan bolludag!

3
3
3
3
3
3
No items found.

Svipaðar uppskriftir

Sjá allt