- 1 meðalstór hvítkálshaus (1-1,5 kg)
- 1-1½ msk gott sjávarsalt (án joðs)
- 1 msk kúmenfræ (valkvætt)
- Hrein áhöld (mikilvægt)
- Örlítið af þolinmæði
Aðferð:
- Undirbúa - Fjarlægðu ystu blöðin (geymdu 1-2) og stilkinn og sneiddu hvítkálið í fínar ræmur.
- Salta og hnoða - Settu hvítkálið í stóra skál, stráðu kúmeni og salti yfir og hnoðaðu með höndunum í 5 -10 mínútur eða þar til kálið er farið að mýkjast og safinn farinn að koma úr því. Því meira hnoð því betra.
- Pakka - Þrýstu hvítkálinu þétt í stóra glerkrukku. Helltu vökvanum úr skálinni yfir kálið. Hafðu 3-5 cm laust pláss efst.
- Fergja - Leggðu hvítkálsblaðið sem tekið var til hliðar ofan á kálið eins og hlíf og settu þyngd yfir (t.d. minni krukku eða staupglas) svo kálið haldist vel undir yfirborði vökvans. Lokaðu krukkunni. Láttu gerjast við stofuhita í 2-4 vikur. Því lengur því súrara … og meira af góðgerlum.
Gerjun er ævaforn aðferð til að varðveita mat. Áður en ísskápar komu til sögunnar nýttu Íslendingar gerjun og sýringaraðferðir til að lengja geymsluþol matvæla en sú hefð á svo sannarlega erindi við okkur í dag.
Við gerjun verða til lifandi örverur og því getur gerjaður matur eins og súrkál verið einstaklega góð leið til að styðja við fjölbreytta þarmaflóru.
Nú þegar haustið nálgast og nýtt og ferskt íslenskt grænmeti fyllir hillurnar er tilvalið að nýta tækifærið og búa til súrkál. Alvöru súrkál er sýrt með mjólkursýrugerjun sem er ævagömul náttúruleg leið til að geyma grænmeti. Súrkál er meinhollt en það er fullt af góðgerlum sem styðja við heilbrigða meltingu og styrkja ónæmiskerfið. Þá er það einnig ríkt af trefjum, c-vítamíni og andoxunarefnum. Hægt er að leika sér með súrkálið að vild og búa til alls konar útgáfur með ólíku grænmeti. Súrkál passar með öllum mat og það er svo sannarlega þannig að ein lúka á dag kemur meltingunni í lag.


.jpg)
































































































