Innihald
Hráefni
- 250g rjómaostur frá Gott í matinn
- 50g Mexíkósk ostablanda Gott í matinn
- 1/2 græn paprika fínt söxuð, passið að geyma stilkinn
- 3 vorlaukar fínt saxaðir
- 100g rifinn cheddarostur frá Gott í matinn
- 2-3 tsk taco kryddblanda
- 1 poki ostasnakk, tegund skiptir ekki máli
- Plastfilma
- 4 gúmmíteygjur
Leiðbeiningar
- Saxið paprikuna og vorlaukinn smátt, blandið öllu saman í skál nema ostasnakkinu og hrærið vel saman. Munið að geyma stilkinn af paprikunni!
- Myljið ostasnakkið fínt í matvinnsluvél.
- Setjið tvöfalt lag af plastfilmu á borð og stráið helmingnum af ostasnakkinu á plastfilmuna, mótið rjómaostablönduna í kúlu með sleif í skálinni og skafið hana á ostasnakkið. Þjappið snakkinu lauslega yfir alla kúluna og pakkið inn.
- Setjið teygjurnar yfir kúluna og setjið næstu alltaf þvert á svo að graskersmynstur myndist á kúluna. Setjið í kæli og kælið að minnsta kosti yfir nótt.
- Takið þá kúluna úr kæli, klippið á teygjurnar og takið kúluna úr plastinu. Setjið hinn helminginn af ostasnakkinu á bretti og þjappið muldu snakkinu jafnt yfir.
- Snyrtið botninn á stilkinum af paprikunni og setjið í miðjuna á ostakúlunni. Berið fram með allskyns flögum, kexi og grænmeti.
Nú erum við stödd í miðjum Ostóber og Hrekkjavakan er á næsta leyti. Sú hefð hefur skapast hjá mörgum að bjóða vinum og fjölskyldu í partý af því tilefni og veitingarnar eru þá hafðar í anda hátíðarinnar. Þessi ostakúla er alveg stórkostleg, hún er einföld og alveg ótrúlega bragðgóð. Nokkrar tegundir af góðum ostum og smá mexíkósk stemning í bragðinu. Með kúlunni bar ég fram nokkrar mismunandi tegundir af kexi og snakki en einnig er gott að hafa með ferska papriku eða agúrkustangir t.d. Þessa verðið þið hreinlega að prófa!

































