Grænmetisæta

Grænmetisæta

Hollt

Hollt

Vegan

Vegan

Tófú heilhveitinúðlur með hoisin chili sósu

30
mín
Erfiðleikastig
Innihald

Hráefni

  • 3 hreiður af Blue Dragon heilhveitinúðlum
  • 1 kubbur Singh Tahoe tófú
  • 1 laukur
  • 1/2 geiralaus hvítlaukur
  • 150 g sveppir
  • 1/2 rauð paprika
  • 1/2 græn paprika
  • 4 msk hoisin sósa frá Blue dragon
  • 4 msk sweet chili sósa frá Blue dragon
  • 4 msk sojasósa
  • 1 msk hrísgrjónaedik frá Blue dragon
  • 1 msk Sriracha sósa
  • 1 msk maizena mjöl

Leiðbeiningar

  1. Byrjið á því að pressa tófúið. Vefjið kubbinn í viskastykki og setjið eitthvað þungt ofan á hann. Pressið í 15 mín. Á meðan er gott að saxa grænmetið. Ég sker laukinn í þunnar sneiðar og paprikuna í strimla.
  2. Skerið tófúið í passlega litla bita. Ég hef mína í minni kantinum eða 1cmx1cm. Setjið tófúið í skák og stráið maizena yfir. Veltið tófúinu upp úr því.
  3. Hitið smá olíu á pönnu og steikið tófúið í 4 mín á hverri hlið eða þar til það er orðið vel stökkt.
  4. Setjið tófúið til hliðar og steikið grænmetið. Blandið sósunum saman í eina skál. Setjið tófúið út á pönnuna og hellið sósunni yfir allt. Látið malla í 5 mín á meðan þið sjóðið núðlurnar eftir leiðbeiningum á pakkanum eða í um 5 mín.
  5. Setjið núðlur í skál og tófu blöndu yfir.

Mikið er nú aldeilis gott að fá aðeins hvíld frá hátíðargúmmelaði svona í desember. Á þriðjudegi er sérlega gott að skella í einn góðan grænmetis núðlurétt líkt og þennan. Einfaldur réttur en alveg sérlega bragðgóður. Þessi aðferð við að elda tófú er líklega ein af mínum uppáhalds en með þessu verður það stökkara og bragðbetra en ella.

Það tekur enga stund að sjóða heilhveitinúðlurnar og græja það sem fer út á þær. Og þessi sósa! Passar með öllu og gæti líklega borðað hana með skeið...

3
3
3
No items found.

Svipaðar uppskriftir

Sjá allt
No items found.