Innihald
Hráefni
- 1 Dala hringur
- 1 Camembert
- 1 Goðdala Feykir
- 1 Goðdala Grettir
- 1 Villisveppaostur
- 1 Hvítlauksostur
- 1 Mexíkóostur
- 1 Óðals Búri skorinn í teninga
- 1 Gullostur
- Vínber
- Fersk jarðarber
- Ætiþistlar
- Svartar ólífur
- Grænar fylltar ólífur
- Rautt pestó
- Grænt pestó
- Kryddpylsa í rúllu
- Salami í sneiðum
- Fersk basilika og steinselja
- Sulta eftir smekk
- Sólþurrkaðir tómatar
- Pekanhnetur
- Grissini brauðstangir
- Parmesan ostastangir
Leiðbeiningar
- Skolið ávexti. Skerið Búra í teninga. Takið ostana úr umbúðunum og raðið á bakka.
- Brjótið salami saman, takið parma skinkuna í sundur, setjið ólífur, tómata, hnetur og ætiþisla í skálar. Opnið krukkur og setjið áhöld í.
- Raðið áleggi, smyrjum og grænmeti í kringum ostana. Setjið fersk krydd inn á milli.
Ostaplattar eru sérlega fallegir á veisluborðið og hægt að setja á þá allt sem hugurinn girnist. Það er snjallt að bæta ostabakka á veisluborðið ásamt öðrum veitingum og auðvelt að stækka þá eða minnka eftir stærð veislu og fjölda veislugesta hvort sem um ræðir fermingar-, útskriftar eða afmælisveislu. Hér raða ég saman fjölbreyttu úrvali af hvers kyns gæða ostum frá MS ásamt ýmsu góðgæti sem rekja má uppruna sinn til Ítalíu. Slíkir bakkar eru kallaðir antipasto og bornir fram sem forréttur. Gott er að hafa í huga að raða saman nokkrum ólíkum tegundum osta, nokkrar tegundir af kjötáleggi ásamt því að setja eitthvað ferskt og litríkt með.


































