Innihald
Hráefni
- 2 msk ólífuolía
- 2 msk balsamedik
- 3 hvítlauksrif söxuð
- 20cm bútur af blaðlauk, saxaður
- 1 lítið rauðkálshöfuð, sneitt mjög fínt
- 1 grænt epli, smátt saxað
- 200g ostakubbur frá Gott í matinn
- 150g ristaðar kasjúhnetur
- Salt og pipar eftir smekk
- Fersk steinselja
Leiðbeiningar
- Byrjið á því að saxa lauk, rauðkál og epli. Ristið kasjúhneturnar á þurri pönnu þar til þær eru orðnar vel gylltar. Setjið til hliðar.
- Hitið olíu og edik saman á pönnu og bætið hvítlauk út á. Steikið hvítlaukinn í 1 mín við meðalhita, gætið þess að brenna hann ekki.
- Setjið blaðlaukinn út á pönnuna og steikið með hvítlauknum í smástund. Bætið þá söxuðu rauðkálinu og eplinu saman við. Steikið á pönnunni við vægan til meðalhita í 30 mín eða þar til rauðkálið hefur mýkst vel en ennþá stökkt inní.
- Myljið ostakubbinn yfir rauðkálið og hellið hnetunum út á. Blandið saman á pönnunni og setjið í fallega skál.
- Berið fram með hverju sem ykkur dettur í hug, fer sérlega vel með hvers kyns hátíðarmat, líkt og kalkún, lambi eða andabringum.
Nú þegar líður að jólum með öllum sínum dásamlegu matarboðum er ekki úr vegi að bjóða upp á uppskrift að alveg stórkostlegu meðlæti. Þetta salat er í senn sparilegt, fallegt og næringarríkt. Ostakubburinn frá Gott í matinn fer svo vel með fersku salatinu, sætunni í eplinu og stökkum kasjúhnetunum. Þetta er ríflegt magn og hentar því vel í stærri boð en það má sannarlega geyma það í kæli og hita upp ef það verða afgangar af því.











.jpg)


























































