Innihald
Hráefni
- 700 gr úrbeinuð kjúklingalæri (ég nota Rose Poultry)
- 200 gr matreiðslurjómi
- 40 gr parmesan ostur
- 1/2 teningur kjúklingakraftur
- 3 hvítlauksrif
- Ein lúka fersk basilika
- 60 gr sólþurrkaðir tómatar
Leiðbeiningar
- Steikið kjúklingalæri á pönnu í 16 mínútur eða þar til þau verða fullelduð og setjið salt og pipar eftir smekk
- Skerið sólþurrkaða tómata í litla bita
- Pressið hvítlauksrifin
- Raspið parmesan ostinn
- Saxið basiliku
- Blandið þessu öllu saman ásamt rjómanum í pott og bræðið saman
- Berið sósuna fram með kjúklingnum
Mikilvægt er að hræra stöðugt í sósunni svo hún brenni ekki við, en um leið og osturinn er bráðinn er hún tilbúin. Ég bar þennan einfalda og góða rétt svo fram með salati.








.jpg)
















































