Innihald
Hráefni
- 2 Græn Epli
- 2 dl Haframjöl
- 2 dl Kókosmjöl
- 1 msk Kókosolía
- 2 tsk Kanill
- 1 tsk Vanilludropar
- Súkkulaði að eigin vali, mitt uppáhald er súkkulaðirúsínur
- 1 msk Granulated stevia
Leiðbeiningar
- Skerið epli niður í þunnar skífur eða smáa bita og setjið í botn á eldföstu móti
- Blandið öllum öðrum hráefnum saman nema súkkulaði í skál og blandið vel saman, gott að nota hrærivél
- Stráið þessu yfir eplin
- Stráið því súkkulaði yfir sem þið veljið að nota
- Setjið inn í ofn á 200 gráður í 12 mínútur
Einfaldur eftirréttur sem er tilvalið að henda í þegar manni langar í eitthvað holt en gott. Ég notaði eftirfarandi vörur í uppskriftina en hún er unnin í samstarfi við Himneska Hollustu. Epla "kakan" er svo borin fram með þeyttum rjóma eða ís.
- Íris Blöndahl












.jpg)



























































































