Barnvænt

Barnvænt

Súkkulaðikaka með kókoskaramellu

40
mín
Erfiðleikastig
Innihald

Hráefni

  • 1 bolli hveiti
  • 3/4 bolli sykur
  • 1 tsk lyftiduft
  • 1/2 tsk matarsódi
  • 1/2 tsk sjávarsalt
  • 3 msk kakó
  • 1/2 bolli AB mjólk frá Örnu
  • 1 stórt egg
  • 1/2 bolli bragðlaus olía
  • 1/2 bolli heitt vatn
  • 1 tsk vanilludropar

Kókoskaramella

  • 140g smjör
  • 140g púðursykur
  • 110g kókosmjöl
  • 5 msk Nýmjólk frá Örnu

Leiðbeiningar

  1. Setjið þurrefni saman í skál og hrærið með sleif þar til allir kekkir eru farnir.
  2. Bætið eggi, ab mjólk, olíu og vanilludropum saman við og hrærið. Bætið vatninu út í og hrærið.
  3. Hitið ofninn í 175°C með blæstri.
  4. Smyrjið frekar stórt kringlótt smelluform, 26 eða 28cm og hellið deiginu út í.
  5. Bakið í 20 mín - takið þá kökuna út og setjið karamelluna yfir. Bakið áfram í 15 mín. Berið fram volga.

Kókoskaramella

  1. Setjið smjör, púðursykur og mjólk saman í pott og bræðið rólega saman, bætið kókosmjölinu út í og hrærið saman við.

Sjónvarpskaka hefur verið vinsæl um árabil og á ættir sínar að rekja til Danmerkur, heitir þar reyndar Draumakaka en það er önnur saga. Súkkulaðikökur eru líka sívinsælar og einfaldar að útbúa. Hvað ef við blöndum þessum tveimur kökum saman? Er það ekki eitthvað? Hvað gæti svo sem klikkað? Ekkert ef þið spyrjið mig! Það er fljótlegt að skella í þessa köku, þurfið enga hrærivél eða bíða eftir að kakan kólni svo það sé hægt að smyrja hana kremi. Hreina AB mjólkin frá Örnu er fullkomin í baksturinn og ég nota hana óspart í allskyns bakkelsi. Mæli með því að þið prófið!

3
3
3
3
3
3
No items found.

Svipaðar uppskriftir

Sjá allt
No items found.