Innihald
Hráefni
- 160g hveiti
- 150g sykur
- 3/4 tsk matarsódi
- 180ml Oatly hafradrykkur með appelsínu og mangó
- 60ml bragðlítil jurtaolía
- 1/2 msk eplaedik, má skipta út fyrir borðedik
- 1 tsk vanilludropar
- 1 msk rifinn appelsínubörkur, varist að raspa niður í hvíta hlutann af berkinum
- 1 tsk appelsínudropar ef vill, má sleppa
Kremið
- 120g flórsykur
- 2 msk Oatly hafradrykkur með appelsínu og mangó
Leiðbeiningar
- Byrjið á því að hita ofninn í 180°C blástur
- Setjið þurrefnin í skál og hrærið með písk
- Blandið út í, Oatly appelsínudrykk, olíu, ediki, vanilludropum og appelsínuberki
- Hrærið saman þar til deigið er orðið samfellt. Smyrjið kringlótt 22cm form og setjið deigið í.
- Bakið í 20-25 mín, fer eftir ofnum en þegar prjónn kemur hreinn upp sem stungið er í hana er kakan tilbúin. Leyfið kökunni að kólna að mestu áður en kremið er sett á.
Kremið
- Hrærið saman í skál og smyrjið á kökuna
Stundum þurfa góðar kökur bara alls ekki að vera flóknar né tímafrekar í gerð. Fólk er að koma í kaffi og þig langar kannski að vippa einhverju fram á mettíma? Þessi er án dýraafurða og hentar því vel þeim sem eru vegan eða óþol fyrir eggjum eða mjólk.
Ég notaði í hana Oatly hafradrykk með appelsínum og mangó og það kom alveg sérlega vel út. Hún er alveg ótrúlega mjúk og rann ljúflega ofan í bæði börn og fullorðna.
No items found.






























































































