Innihald
Hráefni
- 240ml vegan jógúrt, ég notaði hreina Oatly
- Börkur og safi úr einni sítrónu
- 1/2 tsk möndludropar
- 1/2 tsk sítrónudropar
- 80g jurtaolía
- 220g sykur
- 80g möndlumjöl
- 225g hveiti
- 1 tsk matarsódi
- 1/2 tsk lyftiduft
- salt á hnífsoddi
- 60ml haframjólk, ég notaði Oatly ikaffe
- Jarðarber, hindber, bláber, rifsber
Vanillu rjómakrem
- 1 peli Oatly Visp
- 3 msk flórsykur
- 1 tsk vanilludropar
- 1/2 tsk sítrónusafi
- Salt á hnífsoddi
Leiðbeiningar
- Hitið ofninn í 170°C blástur
- Blandið saman þurrefnum í miðlungsstóra skál og blautefnum í aðra skál og hrærið með písk.
- Hellið blautefnum saman í þurrefnin og hrærið með sleif. Smyrjið 20cm form og setjið bökunarpappír í botninn. Smyrjið deiginu í formið og bakið í 35-40 mín. Fylgist vel með eftir svona 30 mín þar sem ofnar geta verið misjafnir.
- Kælið botninn. Útbúið kremið og smyrjið á kalda kökuna. Skreytið með berjum eftir smekk.
Vanillu rjómakrem
- Setjið öll hráefni í skál og stífþeytið. Smyrjið á kalda kökuna og skreytið með berjum eftir smekk.
Þessi kaka er alveg stórgóð og sérlega einföld. Hún er vegan og það þarf engin flókin áhöld eða tæki til þess að græja hana. Hún er létt í sér og ég get svo svarið það að það er smá vor í henni. Oatly visp hafrarjóminn setur bókstaflega punktinn yfir i-ið og fer sérlega með ljósum botninum og ferskum berjum.























































