Barnvænt

Barnvænt

Glúteinlaust

Glúteinlaust

Grænmetisæta

Grænmetisæta

Hollt

Hollt

Vegan

Vegan

Hrökkkex með karrý & epla kjúklingabaunasalati

40
mín
Erfiðleikastig
Innihald

Hráefni

  • 1 dós soðnar kjúklingabaunir, ég notaði frá Rapunzel
  • 1 lítið epli, smátt saxað
  • ¼ rauðlaukur, smátt saxaður
  • 4 msk vegan majónes
  • 1 tsk sítrónusafi
  • 2-3 tsk karrý
  • 2-3 tsk þurrkuð steinselja
  • ½ tsk hvítlauksduft
  • Salt og nýmalaður svartur pipar
  • Nairn‘s original glútenlaust hrökkkex

Leiðbeiningar

  1. Setjið baunirnar í sigti og skolið vel. Setjið í skál, stappið með gaffli og fjarlægið mest af hýðinu af baununum.
  2. Stráið kryddum yfir baunirnar. Skerið epli og rauðlauk og setjið saman við baunirnar og blandið saman með gaffli
  3. Bætið majónesinu og sítrónusafa saman við og hrærið. Smakkið til með salti og pipar. Látið taka sig í kæli í 30 mín.
  4. Njótið með Nairn‘s original glútenlausu hrökkkexi.

Glútenlausa hrökkkexið frá Nairn‘s er alveg nýtt uppáhald hjá mér en það stökkt og létt í sér og passar ljómandi vel með allskonar góðum salötum og ostum. Það hentar sérlega vel þeim sem þurfa að sneiða hjá glúteni og óhætt er fyrir fólk með celiac sjúkdóm að njóta þess. Hrökkkexið er líka vegan og mig langaði að prófa að gera eitthvað djúsí vegan salat til að bera fram með því. Kjúklingabauna salatið kemur alveg ótrúlega á óvart og mæli eindregið með því að prófa þetta saman. Stórgott millimál eða sem léttur hádegismatur.

3
3
3
3
3
3
No items found.