Hráefni
- 1 dós kjúklingabaunir, ég notaði frá Rapunzel
- 1 lítill laukur eða 1/2 venjulegur
- 1 hvítlauksrif marið
- 1 poki Lentils Eat real snakk með Chili & Lemon bragði
- 1 tsk chipotle mauk, má sleppa og nota aðeins meira af tómatpúrru og smá chiliduft
- 2 tsk paprikuduft
- 3 rúmar msk tómatpúrra
- 1 msk söxuð fersk steinselja
Vegan hvítlaukssósa
- 1/2 dós Oatly smurostur
- 1/2 dós Oatly sýrður rjómi
- 1 hvítlauksrifið kramið
- 1 tsk hlynsíróp
- smá salt & pipar
- 1 tsk þurrkuð steinselja
- Öllu blandað saman í skál og látið standa aðeins
Leiðbeiningar
- Sigtið vökvann frá baununum og setjið í matvinnsluvél og vinnið í gróft mjöl. Setjið í skál.
- Setjið lauk, hvítlauk og krydd saman í matvinnsluvélina og vinnið þar til blandan er orðin nokkuð fíngerð. Setjið saman við kjúklingabaunirnar.
- Setjð snakkið í matvinnsluvélina og myljið í rasp. Blandið saman við kjúklingabaunablönduna ásamt tómatpúrru og steinselju.
- Mótið litlar bollur, það þarf að þjappa bollunum svolítið saman með lófunum.
- Kælið bollurnar í 15 - 20 mín og steikið á miðlungshita þar til þær eru gylltar.
Ég er mjög hrifin af öllu sem kjúklingabaunir eru í og þessar bollur eru engin undantekning. Númer eitt, tvö og þrjú myndi ég segja að væru falafel bollur en þessar eru alls ekki síðri. Ég nota í þær Eat real snakk sem er dásamlegt eitt og sér eða dýft í góðan hummus (sem við erum auðvitað með góða uppskrift af hér á grgs.is) en það er líka frábært að mylja það niður og nota í allskyns bollur og buff.
Hér nota ég Lentils snakkið með chili og sítrónu og mér fannst það passa mjög vel með restinni af hráefnunum. Ég dýfði þeim í einfalda en góða hvítlaukssósu sem ég er einnig með uppskrift af og mæli sterklega með.
Uppskrift og myndir eftir Völlu í samstarfi við Innnes ehf. umboðsaðila Eat real á Íslandi.






.jpg)












































































