Innihald
Hráefni
- 1 skammtur sushi hrísgrjón, uppskrift fylgir
- 250g marineraður ferskur lax, skorinn í litla teninga
- Agúrka í þunnum sneiðum
- Avocado í sneiðum
- Edamame baunir
- Gulrót skorin í þunnar sneiðar
- Kasjúhnetur
- Chili majó
Sushi hrísgrjón
- 2 bollar sushi hrísgrjón frá Blue dragon
- 2 bollar vatn
- 1/4 bolli hrísgrjónaedik frá Blue dragon
- 4 tsk sykur
- 1/2 tsk sjávarsalt
Marinering á laxinn
- 1 hvítlauksrif marið
- 1 tsk rifið ferskt engifer
- 2 msk mírin
- 2 msk sojasósa
- Safi úr 1 sítrónu
- 1 msk sesamolía
- 1 msk hrísgrjónaedik frá Blue dragon
- 2 vorlaukar, græni hlutinn fínt saxaður
Chili mæjó
- 1 dl majónes
- 1 msk sriracha sósa
Leiðbeiningar
- Skerið grænmetið, snöggsjóðið edamame baunir og útbúið chili mæjó.
- Útbúið maríneringuna á laxinn. Skerið laxinn í teninga og hellið maríneringunni yfir. Setjið í kæli.
- Setjið sushi hrísgrjón eftir smekk í skálar, toppið með laxi, grænmeti, baunum og toppið með chili mæjó.
Sushi hrísgrjón
- Setjið ósoðin hrísgrjón í sigti og skolið undir köldu vatni þar til vatnið verður tært. Setjið hrísgrjónin í pott ásamt köldu vatni og leggið í bleyti í 30 mín.
- Látið vatnið renna af hrísgrjónunum og setjið 2 bolla af vatni í pottinn og setjið á hellu og kveikið undir. Þegar grjónin fara að sjóða lækkið undir þeim niður í lægsta hita og sjóðið í 15 mín. Varist að opna pottinn á meðan. Slökkvið undir og látið hrísgrjónin bíða í 15 mín án þess að taka lokið af.
- Setjið hrísgrjónaedik, sykur og salt í litla skál og hitið í örbylgjuofni þar til sykurinn er uppleystur. Hellið yfir tilbúin hrísgrjónin og veltið þeim fram og til baka þar til edikið hefur dreifst um þau.
Marinering á laxinn
- Blandið öllu saman í skál. Setjið laxabitana í skál og hellið maríneringunni yfir. Látið marínerast í kæli í 40 mín.
Chili mæjó
- Hrærið saman og setjið yfir skálina.
Poke skálar eru upprunalega frá Hawaii en þær eiga það til að blandast saman við japanska matargerð líkt og sushi. Poke er í raun hrár fiskur skorinn í bita og maríneraður en það þekkist einnig að hafa annað prótín í skálunum. Það er hægt að setja saman sína skál eftir eigin hentisemi og þetta er mín útgáfa sem ég deili með ykkur. Sítrónusafinn í maríneringunni veldur því að laxinn eldast í rauninni án þess að nota hita líkt og við ceviche gerð. Það er smá dútl í kringum þetta en sannarlega þess virði.










.jpg)




















































