Innihald
Hráefni
- 1/4 bolli kókosolía bragðlaus frá Rapunzel
- 1/2 bolli hlynsíróp frá Rapunzel
- 1/4 bolli hafrahveiti (haframjöl malað í matvinnsluvél)
- 2 bollar grófvalsaðir hafrar frá Rapunzel
- 1 bolli blönduð fræ að eigin vali (ég notaði sólblóma og sesamfræ frá Rapunzel)
- 1/2 bolli pekanhnetur
- 1 msk kanill
- 1/2 tsk sjávarsalt
Leiðbeiningar
- Hitið ofninn í 150°C
- Bræðið kókosolíu og hlynsíróp saman í litlum potti
- Blandið saman í stórri skál: Hafrahveiti, haframjöli, fræjum, hnetum og kanil
- Hellið olíu/sírópsblöndunni yfir og blandið saman með sleif
- Dreifið blöndunni jafnt á bökunarpappír og bakið í 45 -50 mín og hrærið í 2x á þeim tíma.
- Takið útúr ofninum og dreifið sjávarsaltinu strax yfir.
Að gera sitt eigið granóla er ótrúlega auðvelt og að sjálfsögðu alltaf miklu betra en það sem við kaupum í búðinni. Það er hægt að leika sér með innihald, taka eitthvað út og bæta í ef maður er með góðan grunn. Þessi uppskrift er auðveld en auk þess er hún vegan og lífræn svo hún hentar flestum.





.jpg)
































































































