Innihald
Hráefni
- 150g Lífrænt engifer kex frá Mols
- 50ml kókosolía brædd, ég notaði frá Rapunzel
- 1/4 tsk sjávarsalt
- 300g kasjúhnetur ósaltaðar, ég notaði frá Rapunzel - lagðar í bleyti yfir nótt
- 125ml kókosmjólk, ég notaði frá Rapunzel
- 80ml hlynsíróp frá Rapunzel
- 3 msk nýkreistur sítrónusafi
- 1 tsk vanilluduft frá Rapunzel
- 1/2 tsk sjávarsalt
- Toppað með möndlu og núggatkrem frá Rapunzel eftir smekk
Leiðbeiningar
- Byrjið á því kvöldið áður en þið ætlið að gera kökuna að setja kasjúhneturnar í skál og látið kalt vatn fljóta vel yfir. Setjið plastfilmu yfir skálina og látið bíða yfir nótt
- Setjið kexið í matvinnsluvél og vinnið smátt. Setjið það í skál ásamt kókosolíu og salti og blandið saman með skeið. Takið 20cm smelluform og klæðið botninn með smjörpappír. Þjappið kexinu ofan í botninn með skeið. Mér finnst gott að hafa þykkari botn en flestir eins og sést á myndum en það er algjört smekksatriði. Setijð formið í frysti á meðan fyllingin er gerð.
- Takið kasjúhneturnar og setjið í sigti. Skolið vel með köldu vatni. Setjið hneturnar ásamt kókosmjólk, hlynsírópi, sítrónusafa, vanillu og sjávarsalti í matvinnsluvél og vinnið vel og lengi þar til blandan er orðin silkimjúk. Stoppið vélina aðeins á milli og skafið niður. Hellið fyllingunni yfir kexbotninn og setjið aftur í frysti í 3 klst.
- Takið möndlu og núggatkremið og smyrjið góðu lagi yfir frosna kökuna. Magn eftir smekk en persónulega fannst mér meira betra en minna!
- Þessi geymist vel í frysti en einnig er hægt að geyma hana í kæli eftir að hafa verið fryst.
Mig hefur alltaf langað til þess að prófa að gera "ostaköku" sem inniheldur ekki ost. Hljómar kannski algjörlega fáránlega en í raun er það bara alveg sjúklega gott og alls ekki eins flókið og ætla mætti.
Það þarf bara að hugsa aðeins fram í tímann því kasjúhneturnar þurfa að liggja í bleyti helst yfir nótt en svo er þetta bara mjúk sigling eftir það. Þessi er óbökuð svo eina sem þarf er bara smá kæli eða frystipláss. Í þessari köku eru einungis lífræn gæða hráefni og ég notaði alveg geggjað engiferkex í botninn. Það kallaði hreinlega bara á það að vera notað í ostakökubotn og það stóð svo sannarlega undir væntingum.
Þessa verðið þið hreinlega bara að prófa!






























