Innihald
Hráefni
- 1 msk ólífuolía, ég notaði frá Rapunzel
- 1 miðlungsstór saxaður laukur
- 1 stór rauð paprika söxuð
- 1/2 saxaður geiralaus hvítlaukur
- 1 tsk cumin
- 1 tsk paprikukrydd
- 1 tsk reykt paprikukrydd
- 1/2 tsk oregano
- 1 dós saxaðir tómatar frá Rapunzel
- 4 lífræn egg
- fersk steinselja
Leiðbeiningar
- Hitið olíuna á pönnu og steikið laukinn ásamt smá salti og pipar, steikið á vægum hita í 5 mín.
- Bætið þá papriku og steikið áfram í aðrar 5 mín eða þangað til grænmetið er orðið brúnað.
- Bætið þá við hvítlauk og söxuðum tómötum ásamt kryddum og látið malla áfram í 10 mín þangað til sósan hefur þykknað.
- Gerið 4 holur í sósuna og brjótið eggin ofan í. Saltið eggin aðeins og setjið lokið á pönnuna. Látið malla í ca. 6 mín eða þangað til hvítan er soðin.
- Berið strax fram með nýbökuðu súrdeigsbrauði.
Margir segja að Shakshuka sé hinn fullkomni morgunverður en hvað er það samt?
Shakshuka þýðir "blanda" eða "blanda af einhverju" á arabísku. Þetta er blanda af heitu grænmeti, gjarnan lauk, papriku og tómötum ásamt nokkrum góðum kryddum sem steikt er á pönnu. Yfir heita grænmetið sem verður að einhverju dásamlegu mauki eru svo sett egg sem gufusjóðast á pönnunni. Og best er að hafa rauðuna vel fljótandi.
Þessi blanda, grænmeti, góð krydd og egg eru fullkominn morgunmatur, fer vel á brunch borðið og ég mæli að bera réttinn fram með mímósu ef stemning er fyrir því.
Þessi færsla er unnin af Völlu í samstarfi við Innnes, umboðsaðila Rapunzel á Íslandi





.jpg)


































































