Innihald
Hráefni
- 2 tilbúin naanbrauð frá Patak's - plain
- 2 msk hvítlauksolía
- 1 tsk kókosolía
- 1 poki vegan kjúklingastrimlar eða um 320g (Oumph eða eitthvað svipað)
- 3 msk Madras spice paste frá Patak's
- 1 dós Oatly sýrður rjómi + auka til þess að setja ofan á snitturnar
- kirsuberjatómatar eftir smekk
- Ferskt kóríander
- salt og pipar eftir smekk
Leiðbeiningar
- Afþýðið vegan kjúklinginn (allt í lagi að það sé enn smá frost í honum), skerið í litla bita. Steikið hann upp úr kókosolíunni þar til hann fer að brúnast. Bætið Madras kryddmaukinu saman við ásamt Oatly sýrða rjómanum, saltið og piprið eftir smekk.
- Hitið grillið í ofninum í 230°C. Skerið naan brauðin í 8 hluta, penslið með hvítlauksolíunni og setjið á ofngrind. Grillið í 2-3 mín þar til brauðin eru farin að brúnast. Fylgist vel með svo brauðin brenni ekki en þau geta verið fljót að brúnast.
- Skerið tómatana í 4 hluta. Takið brauðin út og setjið um 1 - 2 msk af madras blöndunni ofan á hverja snittu. Toppið með oatly sýrðum rjóma, kirsuberjatómötum og kóríander.
Þessar snittur eru ofur einfaldar en jafnframt mjög bragðgóðar og smart á veisluborðið. Þær henta grænmetisætum vel þar sem þær innihalda ekkert kjöt.
Við styttum okkur leið með dásamlegu Patak's naan brauðunum og kryddmauki frá Patak's. Þessar verðið þið að prófa!
































