Innihald
Hráefni
- 200g lífrænar döðlur, ég notaði Rapunzel
- 200ml vatn
- 1 tsk matarsódi
- 150g hveiti
- 2 tsk lyftiduft
- 1/4 tsk salt
- 1 tsk malað engifer
- 1/3 bolli bragðlaus olía
- 1/4 bolli Oatly ikaffe haframjólk
- 2 msk dökkt síróp (ég notaði rauða Lyle's black treacle en líka hægt að nota þetta græna en þá verður kakan ljósari)
- 1/3 bolli púðursykur
Dökk karamellusósa
- 60g smjörlíki eða vegan smjör
- 60g púðursykur
- 2 tsk dökkt síróp
- 75ml Oatly visp hafrarjómi
- 1 tsk vanilludropar
Þeyttur hafrarjómi
- Restin úr Oatly visp fernunni
- 1 tsk vanilludropar
- 1/8 tsk salt
- 1 tsk flórsykur
- Allt stífþeytt saman og sett yfir kalda kökuna.
Leiðbeiningar
- Hitið ofninn í 180°C blástur
- Setjið döðlur í pott ásamt vatni og látið suðuna koma upp. Sjóðið í 5 mín og slökkvið undir. Maukið döðlurnar með töfrasprota þar til þær eru orðnar vel maukaðar. Setjið matarsódann útí ásamt olíu, sykri, sírópi og vanillu.
- Setjið hveiti, lyftiduft og salt saman í skál. Hellið döðlublöndunni út í og hrærið varlega saman.
- Smyrjið eldfast form í minni kantinum og dreifið vel úr deiginu í formið. Bakið í 20-25 mín. Útbúið karamellusósuna á meðan kakan bakast.
- Takið kökuna úr ofninum og látið hana kólna að mestu. Stingið nokkur göt í hana með tannstöngli og hellið karamellunni yfir. Þegar kakan er orðin alveg köld útbúið þá þeytta hafrarjómann og smyrjið yfir kökuna. Ég skreytti hana með smá pekanhnetum en þess þarf ekki.
Dökk karamellusósa
- Setjið smjörlíki, púðursykur og síróp saman í pott og bræðið saman þar til púðursykurinn er uppleystur. Setjið hafrarjómann saman við ásamt vanillu og pískið vel saman. Takið af hitanum og geymið.
Þessi kaka er af enskum uppruna og yfirleitt kölluð "búðingur" en hún er mjög létt í sér og hefur áberandi karamellukeim. Það tekur enga stund að gera hana og hentar fullkomlega sem eftirréttur, í saumaklúbbinn eða jafnvel á vegan jólahlaðborðið.
Nóg af döðlum, karamellu og dúnmjúkum þeyttum hafrarjóma. Þið verðið að prófa!








































































































