Barnvænt

Barnvænt

Keto

Keto

Keto brauðstangir með mozzarella og piparosti

30
mín
Erfiðleikastig
Innihald

Hráefni

  • 150g rifinn ostur með pipar frá Örnu
  • 1/2 kryddostur með pipar frá Örnu, rifinn
  • 1 egg
  • 1 tsk hvítlauksduft
  • 1 tsk þurrkuð steinselja
  • 1/2 tsk þurrkað oregano

Leiðbeiningar

  1. Hitið ofninn í 190°C
  2. Blandið öllu saman í skál og mótið á bökunarpappír í ca. sömu stærð og 12" pizza
  3. Bakið í 15 mín, stillið svo á grillið í ofninum og grillið í nokkrar mín en fylgist vel með!
  4. Leyfið mesta hitanum að rjúka úr og skerið í stangir. Berið fram með sykurlausri pizzasósu líkt og Hunt's pizzasósu.

Þetta er örugglega auðveldasta og besta keto uppskrift sem til er. Örfá hráefni, undirbúningurinn tekur bara örfáar mínútur og útkoman eru ótrúlega góðar brauðstangir sem fáir standast, líka þau sem ekki eru keto.

3
3
3
No items found.

Svipaðar uppskriftir

Sjá allt