Innihald
Hráefni
- 1/2 bolli sykur
- 1/2 bolli sírópið í grænu dollunum
- 1 bolli gróft hnetusmjör (ekki hollu týpuna)
- 1/3 bolli salthnetur
- 3 bollar kornflex
- 150g mjólkursúkkulaði
Leiðbeiningar
- Setjið sykur, síróp og hnetusmjör saman í pott og bræðið saman á vægum hita þar til sykurinn leysist upp
- Saxið salthnetur og setjið út í ásamt kornflexi og blandið vel saman með sleikju, ég brýt aðeins kornflexið í leiðinni
- Þjappið vel niður í form sem er ca. 23 x 23cm, allavega ekki mikið stærra. Setjið í frysti í 20 mín.
- Bræðið súkkulaði yfir vatnsbaði eða í örbylgjuofni. Passið bara að súkkulaðið verði ekki of heitt. Betra að hætta að hita það þegar það er enn þónokkuð óbráðið og leyfa því að bráðna rólega saman.
- Takið formið úr frysti og smyrjið súkkulaðinu jafnt yfir. Kælið þar til súkkulaðið hefur stífnað. Geymið í lokuðu boxi í kæli eða frysti.
Þessir sælgætisbitar slá allt út. Ég gerði þá fyrst fyrir mörgum árum síðan og í hvert sinn sem ég geri þá klárast þeir upp til agna. Þá skiptir ekki máli hvort það sé fyrir afmæli, saumaklúbb, föstudagskaffi í vinnunni eða bara fyrir okkur heima að njóta.
Ótrúlega einfaldir í gerð og tilvalið að gera með krökkunum í innikósíi ❤
Myndir og uppskrift eftir Völlu








































































