Barnvænt

Barnvænt

Fljótlegt mexíkóskt lasagna

40
mín
Erfiðleikastig
Innihald

Hráefni

  • 1 miðlungs stór laukur
  • 1 geiralaus hvítlaukur
  • 1 bolli soðnar svartar baunir (hægt að fá í dós)
  • 500g nautahakk
  • 1 bolli maískorn
  • 450g salsasósa
  • 1/2 bolli vatn
  • 1 hvítlauksostur frá Örnu
  • 2 msk tómatpúrra
  • 2 msk tacokrydd
  • Salt og hvítlauksduft eftir smekk
  • 1 poki mozzarellaostur með hvítlauk frá Örnu
  • 3-4 stórar tortillakökur

Leiðbeiningar

  1. Saxið lauk og hvítlauk og steikið þar til laukurinn er glær
  2. Bætið hakki út á pönnuna og steikið áfram þar til hakkið brúnast
  3. Setjið svartar baunir og tacokrydd út á pönnuna og steikið áfram á miðlungshita
  4. Bætið við maís, salsasósu og hvítlauksosti og látið malla í nokkrar mínútur, smakkið til með salti og hvítlauksdufti
  5. Setjið kjötsósu í botninn á eldföstu móti og leggið tortillaköku yfir, gerið þetta til skiptis og endið á hakksósu. Dreifið mozzarellaosti yfir.
  6. Berið fram með því meðlæti sem ykkur hugnast, toppið með fersku kóríander ef vill
  7. Bakið í ofni þar til osturinn er gylltur

Mexíkóskt lasagna er einn af þeim réttum sem vinsælastir eru á mínu heimili. Það tekur enga stund að henda í kjötsósuna og setja það saman og öllum þykir það jafn gott.

Með fersku salati, sýrðum rjóma og nachos er þetta orðið að veislumáltíð!

Færsla unnin af Völlu í samstarfi við Örnu, mjólkurbú á Bolungarvík

3
3
3
3
No items found.

Svipaðar uppskriftir

Sjá allt