Barnvænt

Barnvænt

Lúxus mjólkurhristingur með saltkaramellu og súkkulaðikexi

10
mín
Erfiðleikastig
Innihald

Hráefni

  • 1l. Vanilluís eftir smekk
  • 1/2 - 1 dl. Nýmjólk frá Örnu
  • 3 msk saltkaramella
  • 250ml rjómi frá Örnu þeyttur
  • Kirsuber í krukku
  • Kökuskraut
  • Karamellusúkkulaði
  • Súkkulaðikex að eigin vali

Leiðbeiningar

  1. Setjið ís, mjólk og saltkaramellu í blandara og blandið þar til allt er samlagað.
  2. Setjið karamellusósu inn á brúnina á háum glösum
  3. Stífþeytið rjóma eða setjið í rjómasprautu.
  4. Hellið mjólkurhristingnum í glösin, toppið með þeyttum rjóma og nammi.

Það er fátt betra og sumarlegra en einmitt mjólkurhristingar. Þessi er ákaflega einfaldur í gerð og fullkomið að bjóða uppá hann í eftirrétt í grillveislu. Í þennan nota ég Örnu nýmjólk og rjóma en Örnu vörurnar eru lausar við laktósa og fara því betur í marga maga.

Það er hægt að útfæra skraut og sælgæti eftir smekk en hér notaði ég dásamlegt karamellusúkkulaði frá Rapunzel og dökkt súkkulaðikex ásamt saltkaramellu og skrauti.

3
3
3
3
No items found.

Svipaðar uppskriftir

Sjá allt