Barnvænt

Barnvænt

Hollt

Hollt

Keto

Keto

Ofnbökuð eggjakaka með mozzarella

15
mín
Erfiðleikastig
Innihald

Hráefni

  • 3 egg
  • 2 kúfaðar msk kotasæla
  • salt & pipar
  • silkiskorin skinka eftir smekk
  • 1/4 græn paprika
  • 2-3 sveppir
  • Stór lúka ferskt spínat
  • 1/2 poki hreinn mozzarella frá Örnu
  • Krydd eftir smekk

Leiðbeiningar

  1. Byrjið á því að skera grænmeti og skinku í bita
  2. Hrærið saman eggjum og kotasælu og saltið og piprið, setjið til hliðar
  3. Hitið avocado olíu á pönnu og steikið grænmeti og skinku, setjið spínatið út í og steikið áfram
  4. Hellið eggjablöndunni yfir og stráið mozzarella yfir eggin
  5. Setjið á grill í ofninum og bakið í 5-10 mín eða þar til osturinn er gylltur
  6. Stráið ferskri papriku yfir

Mér finnst mjög gott að fá eitthvað heitt að borða í hádeginu, smá gamaldags kannski. Samt ekkert alltaf til í eitthvað þungt og flókið. Bara henda einhverju á pönnu í fljótheitum dugir alveg.

Ég færði eggjaköku upp á annað stig með því að grilla hana með osti. Það er vissulega allt betra með grilluðum osti, segi það ekki en þessi er alveg fullkomin. Ég notaði hreina mozzarella ostinn frá Örnu en það er áreiðanlega mjög gott að nota líka þann með pipar eða hvítlauk.

Þessi hentar fyrir 2 eða einn svangan.

3
3
3
No items found.

Svipaðar uppskriftir

Sjá allt